17.10.1984
Efri deild: 4. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (142)

61. mál, átak í dagvistunarmálum

Björn Dagbjartsson:

Virðulegi forseti. Hv. 2. þm. Austurl. lét svo um mælt áðan að nú væri sótt af grimmd að samneyslu. Ég tek þá áhættu í minni fyrstu ræðu hér í hv. deild að verða stimplaður grimmdarseggur þegar ég leyfi mér að láta í ljós vissar efasemdir um þetta frv.

Í fyrsta lagi spyr ég sjálfan mig: Er dagvistun alltaf æskileg eða er hún oft, oftast jafnvel, ill nauðsyn? Er það vinnutími foreldra sem gerir það að illri nauðsyn að koma börnum fyrir eða er það sérstaklega æskilegt uppeldisins vegna að börn séu samvistum við jafnaldra allan daginn nema þá e.t.v. um helgar? Ég er ekki viss um að nægilega sé hugað að því að blanda þarf þessu saman. Ég veit ekki hvort það er mitt uppeldi sem sveitadrengs sem gerir það að verkum, en ég mundi tvímælalaust sakna þess miklu meira hefði ég farið á mis við það að elta föður minn úti við verk heldur en þess tíma sem ég eyddi í skóla á þessum aldri, 8–10 ára. Ég reikna með því og veit það reyndar að slíku verði ekki við komið hér. Börn eru mjög ógjarnan með foreldrum sínum á vinnustöðum. En það er nú svo að mjög víða, þegar að kreppir, geta börn fengið vistun einhvers staðar.

Ég vil taka undir það með hv. þm. Árna Johnsen að ég álít hættulegt að lögbinda framlög í prósent af fjárlögum um aldur og ævi og það hefur þegar sýnt sig að við stefnum í ógöngur í þeim efnum. Ég vil einnig taka undir það að ég held að það sé alveg óvíst hver sé framtíðarþörf á barnaheimilum og dagvistunarheimilum hér á landi. Um það er mjög lítið vitað ef nokkuð. Nú stefnir í það að sífellt yngra fólk fer á eftirlaun. Nauðsyn barna á að vera með fullorðnu fólki mætti mæta með því, og jafnframt yrðu þá bundin þar ómetanleg fjölskyldutengsl, að börn fengju að vera meira með öfum sínum og ömmum á þessum yngstu árum. Frá sex ára aldri álít ég að sé alveg nóg að börn byrji á að vera með sínum jafnöldrum daginn út og daginn inn. Auðvitað hittast börn alltaf, sérstaklega í þéttbýli eins og hér er. Það þarf ekki annað en að lita út á götu til þess.

Mig langar að lokum til að segja eina litla reynslusögu, sem ég hef, af heimsókn í barnaheimili í Kúlá rétt hjá Tallin í Eistlandi. Þetta var mjög vel skipulögð stofnun og öllu mjög vel fyrir komið. Þetta var barnaheimili sem samyrkjubúið Kúlá rak þar. Börnin voru öll eins. Þau voru öll í einkennisbúningum. Þau sátu saman í mismunandi aldurshópum. Í einni stofunni þuldu þau öll saman eitthvað á rússnesku, ekki á sínu móðurmáli. Ég skildi náttúrlega ekki hvað það var. Þau voru þarna allan daginn frá morgni til kvölds. Það var svefntími á milli 12.30 og 14, þó mismunandi eftir aldurshópum. Við litum inn í eina af þessum svefnstofum. Þar sofnuðu öll börn undantekningarlaust rétt eftir að þau voru komin í bólið. Þetta leitt óhuggulega eins út allt saman. Öll börnin voru nákvæmlega eins. Mér fannst þetta ómannlegt og ég var lengi að ná mér. Ef þetta eru þau barnaheimili eða dagvistarheimili sem við eigum að stefna að segi ég nei.