14.12.1984
Neðri deild: 25. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2024 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)

150. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Margrét Frímannsdóttir:

Herra forseti. Frv. það sem hér er til umr., um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, er að flestu leyti samhljóða því frv. sem rætt var og samþykkt á Alþingi í des. s.l. ár. Í umr. þá voru flestir hv. þm. á þeirri skoðun að allt of stuttur tími væri ætlaður til umfjöllunar um þetta þýðingarmikla og vandasama mál sem varðar alla íslensku þjóðina svo mikið. En hér erum við aftur og aftur í tímapressu síðustu daga fyrir jólaleyfi. Ég hefði kosið að hafa hér lengri tíma og taka þá með í umr. ýmsar þær tillögur sem komið hafa fram um stjórnun fiskveiða, t.d. tillögur sem formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins lagði fram nú nýverið og eru virkilega áhugaverðar. En því miður, það kemur ekki til með að vinnast tími til þess að gera þeim þau skil sem þyrfti þar sem bæði bárust þær seint, eftir að þetta frv. var lagt hér fram, og svo það að svo stuttur tími er ætlaður til umfjöllunar um mál þetta sem raun ber vitni og það eru óneitanlega slakleg vinnubrögð þegar fjallað er um undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar.

Ákvörðun tekin um fiskveiðistefnu, er það sem við erum að gera — eða er ekki svo? Það er spurning. Mín tilfinning fyrir innihaldi þessa frv. er sú að í raun séum við ekki að ákvarða hér neitt nema það að fela hæstv. sjútvrh. alræðisvald við stjórnun veiða, framlengingu á valdi hans til að viðhalda því skömmtunarkerfi sem upp var tekið fyrir ári. Vissulega er það þetta sem við erum hér að ræða um, aðalinntak þessa frv.

Og hvað hefur svo kvótakerfið fært okkur það ár sem það hefur verið í gildi? Í grg. sem fylgir frv. fáum við þær upplýsingar að samkvæmt gæðaskýrslu Fiskifélags Íslands hafi nýting veiðarfæra verið betri og gæði fisks, sem veiddur er á vetrarvertíð 1984, verið meiri en þess sem veiddist 1983. Auðvitað. Hver neitar því? Hvenær hefur það gerst að ekki hefur verið munur á gæðum fisks milli ára þegar eins mikill munur hefur verið á tíðarfari og var á milli áranna 1983 og 1984? Ef rekja á þessa gæðaaukningu til þess kvótakerfis sem sett var á um síðustu áramót hlýtur að þurfa að gera samanburð á afla og tíðarfari fleiri ára en þarna er gert.

Um betri nýtingu veiðarfæra gildir það sama. Ef skoðuð er veiðarfæranotkun fleiri ára sést að sú þróun var þegar hafin. Slæm rekstrarstaða útgerðarinnar hafði haft það í för með sér að þegar hafði verið leitað leiða til sparnaðar í veiðarfærakaupum sem og öðrum þáttum útgerðar. En kvótaskiptingin hefur áreiðanlega ýtt undir þessa þróun og það er vel.

Það segir einnig í grg. frv. að í stórum dráttum hafi þeim markmiðum, sem stefnt var að í upphafi, verið náð. Það er indælt að sjá þetta hér á pappírum, en ég efast um að hægt sé að standa við slíkar fullyrðingar. Ef gögn liggja fyrir sem sanna hið gagnstæða hafa þau ekki borist sjútvn.-mönnum og af svörum fulltrúá sjútvrn., sem mættu á fund n., hefur ekkert komið fram sem hægt er að byggja þá afstöðu á að markmiðum þessarar stefnu hafi verið náð, nema þá að það séu einhver þau markmið sem aldrei hafa verið gerð opinber. Því var m.a. haldið fram af fylgismönnum frv. við samþykkt þess fyrir ári að með ákveðnu aflamarki á skip sé tryggt betur en hægt er með öðrum leiðum fiskveiðistjórnunar að jafna dreifingu afla á byggðarlög. Hafi það verið eitt af þeim markmiðum sem stefnt var að í upphafi hefur það mistekist, enda er það ráðgáta, hvernig skipting afla á báta, miðað við meðalafla þriggja ára þessara sömu báta, getur komið því til leiðar að um réttlátari og jafnari skiptingu á milli byggðarlaga sé að ræða. Stjórnun fiskveiða er nauðsynleg.. Það er staðreynd sem allir horfast í augu við og flestir eru tilbúnir til að játa. En frv. það sem hér er á ferðinni gefur í raun allt of litlar upplýsingar um það sem fram undan er, að hverju er stefnt.

Eins og komið hefur fram er ég á móti því að einum manni sé falið það alræðisvald sem þetta frv. felur í sér. Það er þó rétt að taka það fram að sú skoðun mín mótast ekki af því að ég telji vinnubrögð hæstv. sjútvrh. s.l. ár vera slæm, síður en svo. Ég tel að hann hafi í flestum tilvikum farið vel með það vald sem honum var fengið. En ég er engu að síður sannfærð um að þetta er ekki rétt leið í landi lýðræðis og ekki rétt gagnvart þeim sem vinna og hafa unnið við þennan undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar.

Herra forseti. Það eru ýmis fleiri atriði sem ég hef við frv. að athuga en það hver eða hverjir skuli fara með valdið. Í fyrsta lagi má nefna þar veiðar smábáta sem ég tel sjálfsagt að séu utan kvóta. Þó svo augljós sé nauðsyn þess að hafa á því stjórn hversu mikill afli berst á land, svo ekki sé hætta á útrýmingu ákveðinna fiskitegunda, er óhætt að fullyrða að það aflamagn sem trillurnar bera að landi skiptir þar ekki sköpum. Þeir sem stunda sjó hafa haft tækifæri til að ná sér í aukakvóta, en ekki þessi ákveðni hópur sjómanna. Þeir voru reknir í land. Slík ráðstöfun er óskiljanleg og ég ítreka enn og aftur að sá tonnafjöldi sem berst að landi með smábátum er ekki það mikill að hann skipti hér nokkru máli.

Annað atriði, sem ég geri aths. við og mun flytja till. um við 2. umr., eru humarveiðar. Humarveiðar hafa um árabil takmarkast af heildarkvóta og sú aðferð gefist vel. s.l. sumar bregður hins vegar svo við að beitt er sömu reglum og um fiskveiðar, þ.e. ákveðinn kvóti á hvern bát. Þessi ákvörðun virðist hafa verið tekin án þess að nokkur rök mæltu sérstaklega með henni og ábyggilegt er að ekki stuðlar þessi sérstaka ákvörðun að jafnari dreifingu afla milli byggðarlaga. Ég mun flytja till. um að takmörkun humarveiða verði sett á sama hátt og gert var hér áður með heildarkvóta.

Það eru fleiri atriði sem ég tel að skoða þurfi betur áður en frv. þetta kemur til endanlegrar afgreiðslu, svo sem handfæra- og línuveiðar.

Í 5. gr. frv. er fjallað um opnun ákveðinna svæða til veiða á vannýttum fiskistofnum. Það er að vissu marki ágætt. Þarna hefði þó mátt fylgja ákvæði um stærð báta og gerð veiðarfæra sem nota á við veiðar á þessum svæðum. Ég er þeirrar skoðunar að ákaflega varhugavert sé að opna ákveðin svæði án þess að sett séu stærðartakmörk báta. En um þessi atriði og fleiri verður eflaust fjallað ítarlega af sjútvn. þessarar hv. deildar.

Þær tvær breytingar sem þegar hafa verið samþykktar í hv. Ed. á frv. eru svo sannarlega til bóta, sérstaklega það að fellt er út ákvæði um að lögin skuli gilda til þriggja ára. Það var hrein vitleysa. Engar þær niðurstöður liggja fyrir um reynslu kvótakerfisins sem hefðu réttlætt slíka lagasetningu. En þó tvær breytingar hafi verið gerðar er enn margt sem þarf meiri umfjöllun og vonandi að það liggi fyrir haldbærari upplýsingar til alþm. en voru á fyrstu fundum sjútvn. um frv.