17.12.1984
Efri deild: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)
148. mál, fæðingarorlof
Árni Johnsen:
Hæstv. forseti. Í umr. um þetta mál í hv. deild á síðasta ári benti ég á að þessi merking Kvennalista á fjárlögum varðaði um nær 2% fjárlaga. Hv. þm. og flm., Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sagði í máli sínu að það gæti ekki verið og undirstrikaði þá að hún hafði ekki gert sér grein fyrir því um hvað væri að ræða í peningum. Það er ósköp einfalt að koma hér upp með till. mánaðarlega eða árlega sem marka tekjustofna samfélagsins og binda þá, en það er hins vegar spurning um það hvort slíkar till. eru ekki fremur sýndarmennska en alvara.
Það er mikið misrétti fólgið í því að gerður sé slíkur greinarmunur sem frv. hv. þm. gerir grein fyrir, á rétti nýborins barns. Þarna hlýtur einnig að eiga að fjalla um rétt barnsins ekki síður en foreldris. Að tryggja öllum laun, bæði móður og föður, það er að sjálfsögðu út í hött og er ekki einu sinni tímabært að fjalla um slíkt í alvöru.
Það er hægt að velta svona hlutum fyrir sér á margan hátt. Ef við horfum nú í eigin garð og veltum fyrir okkur hvaða fjölskyldur innan þingflokka skyldu hafa hæst meðallaunin þá kemur í ljós að líklega er þar Kvennalistinn efstur á blaði með hæstar ráðstöfunartekjur á fjölskyldu. Líklega hefur meiri hluti Kvennalista allt að 10–12 sinnum meiri ráðstöfunartekjur en almenn verkamannafjölskylda í landinu. Er Kvennalistinn með slíku frv. að tryggja þannig eigin rétt? Kvennalistinn hefur verið þekktur fyrir það að vitna í vini sína í ummælum á Alþingi. Er listinn e.t.v. að tryggja þarna eigin rétt í tekjuöflun umfram aðra og almenna þegna þessa lands?
Gert er ráð fyrir að faðir geti tekið fæðingarorlof og ég ætla ekki að endurtaka það sem ég fjallaði um þetta mál í umr. á síðasta þingi. En það er mikil hætta á því að ef slíkt frv. nær fram að ganga byrji hrossakaup í sambandi við fæðingar barna, að tekjuháir feður fari að taka sér fæðingarorlof til þess að ná fram ákveðnum möguleikum í peningum á kostnað móðurinnar sem málið á þó allt að snúast um. Ég vil því leyfa mér að kalla slíkt frv. Kvennalista fyrst og fremst sýndarmennsku.
Það er full ástæða til þess hins vegar að rétta hlut þeirra kvenna sem sitja hjá í þessu máli í dag. Það eru um 1400 konur sem hafa skertan rétt skv. síðustu tölum á móti, ef ég man rétt, 2700 sem hafa haft fullan rétt. Það er þarna sem þarf að taka á, að það sé sami réttur allra kvenna til fæðingarorlofs, að ekki sé tekið tillit til þess hvar fólk hefur lent í þjóðfélagsstiganum, að það sé sami réttur fyrir hvert nýborið barn í landinu en sé ekki verið að hossa þeim sérstaklega sem betur standa fjárhagslega.
Það er kannske ekki eðlilegt að aðilar, sem hafa eins háar rauntekjur og þeir sem standa að baki flutningi þessa máls í nafni Kvennalista, hugsi svo smátt að taka fyrst og fremst tillit til þeirra lægst launuðu og þeirra sem hjá sitja í rétti til fæðingarorlofs í landinu. En það er a.m.k. ástæða til að benda aðilum á að velta slíku fyrir sér og eyða þarna tortryggni og misrétti í staðinn fyrir að stuðla að því að það sé aukið.