17.12.1984
Efri deild: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)

148. mál, fæðingarorlof

Flm. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Árni Johnsen kom hér og talaði um að það ætti að vera sami réttur fyrir hvert nýborið barn í þessu landi. Vill þá ekki hv. þm. Árni Johnsen flytja einhverjar till. um það og sem gera það að verkum að hver fjölskylda hefði sömu aðstæður til að ala upp börn hér á landi? Vill þá ekki hv. þm. flytja till. um tekjujöfnun í þessu samfélagi, um jafna og réttláta dreifingu á skiptingu þjóðartekna? Væri það ekki nær?

Síðan bendi ég hv. þm. á að lesa frv. og sjá að þær 1400 konur, sem í dag bera skertan hlut frá borði vegna þess að þær eru heimavinnandi eða ekki í fullu starfi, fá fulla greiðslu fæðingarorlofs með þessu frv. (Gripið fram í: Lágmark?) Lágmark 18 089 kr. á mánuði. (Gripið fram í: Lágmark?) Já. Lágmark. Það er ekkert hámark á þessu, en það er sett lágmark. Ég sé enga ástæðu til að setja hámark á tekjur og afkomu kvenna, en það er fyllsta ástæða til að setja lágmark eins og í pottinn er búið núna.

Við getum verið síðan, hv. þm. Helgi Seljan og ég, á mismunandi skoðun um tekjuviðmiðun. En ég vil að lokum segja það að ég undrast að forseti skuli ekki gera athugasemd við það þegar hv. þm. draga persónulega hagi annarra þm. hér í ræðustól.