17.12.1984
Efri deild: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2059 í B-deild Alþingistíðinda. (1499)

235. mál, Háskóli Íslands

Frsm. (Haraldur Ólafsson):

Virðulegi forseti. Menntmn. Ed. hefur haft þetta mál til meðferðar og kallað á fund sinn rektor Háskólans, Guðmund Magnússon, og fengið hjá honum ýmsar skýringar á þeim atriðum sem einkum er þarna fjallað um.

Eins og fram kom í framsöguræðu hæstv. menntmrh. fyrir þessu frv. eru hér þrjú meginatriði sem mestu skipta. Það er í fyrsta lagi skipting verkfræði- og raunvísindadeildar í tvær deildir. Í öðru lagi er það nokkur viðbót við það sem nefnt hefur verið framgangskerfi Háskólans og segir til um að háskólaráð geti lagt til að forustumenn háskólastofnunar séu fluttir í prófessorsstöðu skv. þeim reglum sem annars gilda um prófessorsembætti. Og loks sú nýjung að Háskólinn fái heimild til að stofna þróunarmiðstöð og eiga aðild að sameignarfélögum, hlutafélögum og sjálfseignarstofnunum er stunda rannsókna- og þróunarstarfsemi eða framleiðslu og sölu tengda slíkri starfsemi.

Önnur atriði í frv. eru minni háttar. Það er um rektor. Hann skuli leystur undan kennsluskyldu og hafa mikið að segja til um hver gegni störfum vissan tíma meðan hann er í því starfi og loks um skammtíma leyfisveitingar til kennara sem eru í höndum rektors.

Nefndin varð sammála um að leggja fram brtt. við 5. gr. frv. Á undan 1. efnismgr. komi ný mgr. er orðist svo:

„Háskólanum er heimilt að stofna þróunarmiðstöð. Þróunarmiðstöðin heyrir undir háskólaráð og verði allar meiri háttar ákvarðanir hennar háðar samþykki þess.“

Þetta er gert í fullu samráði við rektor. Reyndar er það svo skv. háskólalögum að Háskólinn getur myndað slíkar stofnanir innan vébanda sinna, en nm. þótti rétt að festa þetta í lagatextanum.

Ég ætla ekki að orðlengja um þær breytingar sem hér eru lagðar til. Það virðist einsætt að heppilegt sé að skipta verkfræði- og raunvísindadeild í tvær deildir. Má segja að þessi deild sé þegar orðin ríki í ríkinu. Hún er fjölmennasta deild Háskólans og að ýmsu leyti er þar um óskylda hluti að ræða. Annars vegar hið beina verkfræðinám og hins vegar nám sem beinist að því að búa menn undir kennslu eða vísindarannsóknir í öðrum greinum, t.d. fjölmörgum líffræðigreinum, stærðfræði, eðlisfræði og öðru slíku. Ekki er gert ráð fyrir að þessi breyting hafi verulegan kostnaðarauka í för með sér og varla meiri en þann sem leiðir af síauknum fjölda nemenda og kennara í þessari deild.

Framgangskerfi innan Háskólans hefur löngum verið mikið áhugamál háskólakennara og starfsmanna Háskólans. Nú eru ákvæði um að hægt sé að flytja lektor í dósentsstöðu eftir ákveðnum reglum og það hefur verið áhugamál að hægt verði að hækka síðan dósenta í prófessorsstöður. Það hefur ekki náðst fram, en hér er þó farinn millivegur þannig að þeir sem eru forstöðumenn háskólastofnana geti verið fluttir í prófessorsstöðu, en þó eftir sömu reglum og verði að gangast undir sama mat og þeir sem sækja um lausa prófessorsstöðu við skólann.

Ég vil fjalla nánar um þá brtt. sem nefndin flytur. Hún er eins og ég sagði til að festa greinilega í lögum að það skuli vera háskólaráð sem hafi síðasta orðið í sambandi við skuldbindingar Háskólans, að sjálfsögðu ásamt öðrum yfirvöldum Háskólans. Brtt. er sett fram m.a. vegna ábendinga þriggja starfsmanna Háskólans, þeirra Páls Jenssonar, Þorgeirs Pálssonar og Þorkels Helgasonar, og reyndar hafa fleiri rætt um þetta. Þeir segja í stuttri greinargerð um þetta að heppilegt sé að slík þróunarmiðstöð starfi. Hún geti verið aðili að samningagerð Háskólans við ýmsa aðila atvinnulífsins og hafi m.a. það hlutverk að gæta réttinda háskólamanna — það er augljóst mál að þau geta verið allmikil í sambandi við það nýmæli sem hér er lagt til að fellt verði í lög — og eins að annast skrifstofuaðstoð og vissan hluta af bókhaldi og fjárreiðum í sambandi við slíkt samstarf.

Það er það rækilega gerð grein fyrir þessum atriðum í greinargerð og fylgiskjölum með frv. að óþarfi er að rekja það nánar. Ég vildi þó minna á örfá atriði og, með leyfi forseta, ætla ég að lesa örstutta kafla úr greinargerð rektors, Guðmundar Magnússonar. Þar segir fyrst:

„Aðdragandi þeirrar þróunarmiðstöðvar og þróunarfyrirtækis, sem rætt hefur verið um innan Háskólans, sé að þar, í Háskólanum, sé unnið að fjölmörgum verkefnum sem unnt væri að þróa til sölu á markaði. Oft tekur þetta langan tíma sakir aðstöðuleysis, fjárskorts eða tímahraks. Jafnframt hefur umfang útseldrar þjónustu og rannsókna aukist.

Háskólaráð setti á sínum tíma á laggirnar nefnd undir forustu dr. Sigmundar Guðbjarnasonar prófessors til að gera tillögu um skipulag þjónusturannsókna í Háskólanum. Nefndin skilaði áliti 1982. Eftir tillögum hennar var aðstöðugjald lagt á útselda þjónustu og ráðinn var maður í hlutastarf til að kynna starfsemi Háskólans á þessu sviði og afla verkefna.

Spurningin er nú hver eigi að vera næstu skref í þessum efnum samtímis því sem við verðum að taka mið af þeirri stöðu sem við erum í og aðstæðum hljótum við að líta til reynslu annarra á þróunarbrautinni.“

Enn fremur segir rektor að hann hafi látið athuga nokkur atriði sem einkum snerta starfsmenn Háskólans í sambandi við þau nýmæli sem hér er um að ræða og með leyfi forseta, les ég örstuttan kafla úr því. Hann segir:

„Þau helstu atriði sem snerta störf háskólakennara eru þessi: Höfundaréttur, höfundaþóknun og skráning einkaleyfa. Ég hef beðið dr. Gauk Jörundsson prófessor og Jóhannes L. L. Helgason lögfræðing Háskólans að gera tillögur að reglum í þessum efnum með hliðsjón af gildandi lögum. Er reyndar furða að ekki skuli þegar hafa verið deilumál af þessu tagi innan Háskólans. Það er ekki hvað síst í samningum við þriðja aðila sem Háskólinn þarf að setja viðmiðunarreglur.“

Og enn fremur:

„Ég álít að kennarar eigi að geta valið um það hvort þeir vilja stofna einkafyrirtæki eða vinna gegnum Háskólann eða fyrirtæki hans. Háskólaráð hefur mælt með beiðni tveggja kennara um að fá að stofna og reka einkafyrirtæki að því tilskildu að þeir gangist undir þær reglur er ráðið kemur til með að setja um upplýsingaskyldu, skráningu einkaleyfa o.fl.“

Loks vil ég minna á að sem kunnugt er hefur ríkisstj. boðað að hún muni verja 500 millj. kr. á næstu árum til þróunarstarfsemi. Ekki er enn þá vitað hvernig þessu fé verður varið í smáatriðum, en svo mikið er víst að til að efla tækniiðnað í landinu er varla hægt að gera það nema með samstarfi við Háskólann og stofnanir hans.

Virðulegi forseti. Ég læt þá máli mínu lokið um þetta efni. Ég vil taka fram að um þessi meginatriði var samstaða í háskólaráði þótt innan Háskólans séu að sjálfsögðu ýmsar skoðanir uppi um hvernig fyrirkomulagið skuli vera.