17.12.1984
Neðri deild: 27. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2088 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
192. mál, málefni aldraðra
Frsm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til l. um breyt. á lögum um málefni aldraðra og er nál. á þskj. 329. Undir nál. skrifa sex nm. Fjarverandi var Guðmundur Bjarnason alþm., en hann er einn af höfundum þessa frv. þannig að gera má ráð fyrir að hann samþykki það eins og það kom úr hans höndum.
Tilefni þessa frv. er það að við afgreiðslu á frv. til l. um breyt. á þessum lögum seint á síðasta ári hét hæstv. heilbr.- og trmrh. því að lög um málefni aldraðra skyldu verða endurskoðuð, sérstaklega þó ákvæðin um Framkvæmdasjóðinn, og sú er einmitt niðurstaða þessarar endurskoðunar sem kemur fram í þessu frv.
Með breytingum sem gerðar eru skv. þessu frv. er komið meiri festu á starfsemi Framkvæmdasjóðs aldraðra sem virðist nú hafa verið ærin þörf á því að frá því að samþykkt voru fyrstu lögin um Framkvæmdasjóð og eftir að Framkvæmdasjóðurinn var tekinn inn í lög um málefni aldraðra hafa verið gerðar breytingar á þeim nær árlega. Ég er sammála því, sem kemur fram í aths. við frv., að sú breyting sem nú er gerð geti orðið til þess að koma meiri festu á Framkvæmdasjóð aldraðra og það eigi ekki að vera að hlaupa til og breyta slíkri löggjöf frá ári til árs eftir því hvernig standi í ból viðkomandi fjmrh. hverju sinni.
Annað af þeim stefnumiðum sem kemur fram í sambandi við þetta frv. og frv. stefnir að er að færa fjármögnun hjúkrunarrýmis á vegum sveitarfélaga að nýju til fjvn., enda verði þá tekjur af nefskattinum einu tekjur sjóðsins. Er gert ráð fyrir því og heimilað að Framkvæmdasjóður aldraðra geti ráðstafað 30% tekna sinna í þágu hjúkrunarrýmis á vegum sveitarfélaga.
Enn ein breyting er gerð, sem er nýmæli í þessum lögum, en það er að fulltrúi fjvn. taki sæti í samstarfsnefnd um málefni aldraðra þegar hún fjallar um málefni Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Í sjálfu sér er óþarft að fara efnislega út í umr. um þetta mál hér, enda gefst ekki tími til þess þó að af nógu væri að taka, en ég leyfi mér að undirstrika það sem kemur fram í nál. heilbr.- og trn. sem er samhljóða því sem kom fram í nál. heilbr.- og trn. hv. Ed.
Við í nefndinni mælum með samþykkt frv. í trausti þess að heildarframlög til þessara mála verði ekki lægri að raungildi á næsta ári en fjárlög 1984 mæla fyrir. Ég vænti þess að viðstaddir ráðherrar og ef einhverjir væru hér úr fjvn. komi á framfæri þeim óskum sem hafa komið fram nú í nál. okkar. Ég vona að hv. deild taki undir, sem eindregið var tekið undir í Ed., að þessu verði komið áleiðis til þeirra sem nú eru að glíma við síðustu tillögur í sambandi við fjárveitingar ríkisins og við þessu verði orðið.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri nema tilefni gefist til, en við í nefndinni mælum með því að frv. verði samþ. óbreytt.
Hv. þm. Guðrún Helgadóttir er með fyrirvara um afgreiðslu málsins.