17.12.1984
Neðri deild: 27. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2094 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)

Afgreiðsla þingmála

Svavar Gestsson:

Herra forseti. 214. mál, um söluskatt, er tvímælalaust eitt af þeim málum sem ríkisstj. hefur lagt mesta áherslu á að fá afgreitt núna á síðustu dögum þingsins fyrir hátíðar og málið er seint fram komið. Það gekk treglega að kreista þetta í gegnum stjórnarflokkana, eins og kunnugt er. Að lokum tókst þó fjmrh. að pína Sjálfstfl. til að samþykkja þá skatthækkun sem hér stendur til að taka fyrir.

Forsendur þessa máls samkv. yfirlýsingu fjmrh. eru niðurfelling eða endurgreiðsla uppsafnaðs söluskatts í sjávarútveginum. Á fundi fjh.- og viðskn. Nd. í morgun fór ég fram á að fá upplýsingar um þessa endurgreiðslu til sjávarútvegsins. Í fyrsta lagi fór ég fram á áætlun Þjóðhagsstofnunar um endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts í sjávarútvegi, á hverju hún væri byggð, hvernig fundin væri út þessi tala, 450 millj. kr., en í fyrstu áætlunum sem við sáum um þetta s.l. sumar minnir mig að stuðst hafi verið við töluna 360–370 millj. kr. Síðan fréttum við af því í fjh.- og viðskn. Nd. á þessum sólarhring að söluskattsáætlun fjárlaganna sé að breytast um 2 milljarða kr. eða nákvæmlega 1.9 milljarða, þ.e. að hún fari úr 8.4 milljörðum kr., eins og þetta er í fjárlagafrv., og sveiflist upp í 10.3 milljarða í tölvunum hjá þeim uppi í fjmrn. Þar af leiðandi hlýtur maður að gera ráð fyrir að upphæð uppsafnaðs söluskatts í sjávarútveginum breytist líka, en um það eru engar upplýsingar til. Embættismaður fjmrn., sem starfaði með okkur í fjh.- og viðskn., fékk engin gögn um þetta mál af neinu tagi, m.a. ekki frá Þjóðhagsstofnun, og meiri hl. n. veit ekkert um þetta mál. Formaður n. lýsti því yfir að hann vissi ekkert um það.

Í annan stað óskuðum við eftir því á fundi fjh.- og viðskn. í morgun að við fengjum hugmyndir fjmrn. um það hvernig háttað verður endurgreiðslu söluskatts til sjávarútvegsins. Verður það gert svipað og til iðnaðarins? Verða gerð upp þriggja mánaða tímabil eða tveggja mánaða tímabil? Eftir hverju verður farið? Verður farið eftir nótum? Hvað verður greitt til útgerðarinnar? Hvað verður greitt til fiskvinnslunnar? Þessi svör vildum við fá vegna þess að þessi endurgreiðsla á að taka gildi frá og með 1. janúar n.k. og þangað til eru fjórtán dagar.

Við lögðum þessar spurningar fyrir í morgun og engin svör hafa borist þó að okkur hafi verið lofað því í morgun að upplýsingar lægju fyrir. Ég tel algjörlega ótækt að afgreiða þetta mál öðruvísi en að þessi gögn komi fram og ég sé ekki að það sé nokkur ástæða til þess heldur vegna þess að þessi gögn hljóta að vera til einhvers staðar í kerfinu. Menn hljóta að vita um þessa pappíra, hljóta að hafa hugmynd um hvernig þeir hafa reiknað þetta út, þannig að ég sé ekki betur en það eigi að vera hægt að finna þetta ef menn gefa sér til þess örlítinn tíma.

Ég fer fram á það við hv. meiri hl. hér á Alþingi að þessi gögn verði dregin fram áður en málið verður afgreitt. Það er algjörlega óeðlilegt að Alþingi sé að afgreiða þetta frv., sem hér stendur til að taka fyrir, öðruvísi en að þessi gögn komi fram. Ég skil það að hæstv. ríkisstj. leggur áherslu á að fá málið afgreitt fyrir jól, vegna þess að þetta er ein af forsendum fjárlaga, og ég vil fyrir hönd míns flokks leyfa mér að lýsa því yfir að við munum gera allt sem við getum til að aðstoða við það að málið nái fram að ganga með eðlilegum og þinglegum hætti þegar þessar mikilvægu upplýsingar liggja fyrir. En það er ekki hægt að afgreiða svona mál án þess að upplýsingarnar liggi fyrir.