18.10.1984
Sameinað þing: 7. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í B-deild Alþingistíðinda. (160)
Starfshættir Alþingis
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Áður en gengið er til dagskrár skal þess getið, að nokkrar nefndir þingsins hafa ekki enn kosið sér formann, varaformann og ritara. Það er áríðandi að enginn dráttur verði á því að þetta verði gert, til þess að hægt sé að setja starfsemi þingsins á laggirnar með eðlilegum hætti, eins og þingsköp gera ráð fyrir. Þess er því vænst að undinn verði bráður bugur að því að sinna þessu verkefni.