17.12.1984
Neðri deild: 29. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2121 í B-deild Alþingistíðinda. (1601)
Um þingsköp
Forseti (Ingvar Gíslason):
Sannleikurinn er sá að það er ekki rétt skilið hjá hæstv. ráðh. hvað bak við lá hjá forseta í þessu tilfelli, því sannleikurinn er sá að það er búið að taka þetta mál á dagskrá og forseti var að leita afbrigða fyrir því að þetta mál, eins og hin málin sem á dagskránni eru, mættu koma fyrir. Ég óska nú eftir því að sá framgangsmáti verði hér og menn taki þeim orðum forseta vel að þetta mál komi til umr. (RH: Það átti að fresta umr.) Það var aðeins verið að fresta umr. Þetta mál er nú verið að taka hér á dagskrá á ný.
Á þeirri dagskrá sem liggur fyrir þessum fundi, sem við vorum nú rétt að byrja, eru tímabundið vörugjald, söluskattur og Háskóli Íslands.