17.12.1984
Neðri deild: 29. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

214. mál, söluskattur

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Það er nú kannske ekki ástæða til að lengja þetta mál. En mér finnst fullmikið sagt að þetta hafi verið samsafn af málum og óskalisti ráðh. Varðandi þau tvö frv. sem hér hafa verið gerð að umtalsefni, útvarpslagafrv. og lánsfjárlagafrv., var það strax tekið fram á þessum fundi formanna þingflokka og forseta að ekki yrði lögð áhersla á að þau mál næðu fram að ganga fyrir jólahlé. Það er hins vegar rétt að frv. um Háskóla Íslands, sem var á þessum lista, var ekki komið fram þá í þinginu, og af þeirri ástæðu treystum við okkur ekki til að leggja neina höfuðáherslu á að það mál næði fram að ganga. En það er sem sagt ósk mín að þetta mál megi fara til n. og það ráðist þá þar hvort það nær afgreiðslu eða ekki.