17.12.1984
Neðri deild: 29. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (1617)
214. mál, söluskattur
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Hér er verið að ræða um söluskatt með tilbrigðum, smávægilegum, og ekki veitir nú af að punta svolítið upp á þetta söluskattsmál vegna þess að það er nokkuð skondið. Ég er á nál. frá minni hl. fjh.- og viðskn. þar sem hv. þm. Kjartan Jóhannsson, Svavar Gestsson, undirritaður og Guðrún Agnarsdóttir lýsa því að þau vilja að þetta frv. verði fellt.
Þetta frv. á sér að ýmsu leyti dálítið merkilega sögu. Það er nokkuð lýsandi fyrir það brambolt og óstand sem hefur verið á stjórnarheimilinu í haust. Það minnir mig svolítið á gamlan danslagatexta sem ég heyrði einu sinni. Lokalínan þar var svona: „En þú sem ég leitaði lengst um dröfn, þú beiðst mín loks í heimahöfn“. Eins sýnist mér eiginlega leit stjórnarflokkanna vera að skattheimtu. Þegar þessi ríkisstj. koma að verkum boðaði hún nýsköpun á öllum sköpuðum sviðum. Það átti að verða nýsköpun í efnahagsmálum, það átti að verða nýsköpun í atvinnumálum og guð veit hvar ekki átti að verða nýsköpun. Við höfum nú séð nokkurn veginn hvernig fer fyrir þessari nýsköpun. Það fer lítið fyrir nýsköpuninni í efnahagsmálunum. Þeir leituðu lengst um dröfn að nýjum skattstofnum og komu svo aftur og þá beið þeirra í heimahöfn gamli góði söluskatturinn. Það var það eina sem þeir gátu leitað til. Og það var svo sem ekki eins og þetta væri harmkvælalaust, vegna þess að þrátt fyrir þessar hugmyndir um hækkun söluskatts var því fastlega neitað lengi vel að nokkuð slíkt stæði til. Síðan fór að heyrast orðrómur um söluskattshækkun og þá var það ýmist kallað fastmótaðar tillögur eða lauslegar hugmyndir. Þegar hæstv. fjmrh. Sjálfstfl. var inntur eftir þessu máli kallaði hann það lauslegar hugmyndir sem hann hefði kynnt fyrir stjórnarþingmönnum. En hv. þm. Framsfl. tóku málið alvarlega og samþykktu, enda töldu þeir þetta vera fastmótaðar tillögur. síðan komu þeir að þingflokksfundi loknum hér fram á gang og fundu þar þm. sjálfstfl. út um allt í óróa miklum. Þá höfðu hinar laust mótuðu hugmyndir fjmrh. farið þannig fyrir brjóstið á þeim.
Síðan vísaði hver á annan um stund. Formaður flokksins vísaði á fjmrh. og enginn virtist vilja eiga krógann. Síðan var látið svo heita, til þess að láta þetta líta betur út þegar allt var á enda komið, eins og búið er að lýsa hér fyrr í kvöld, að þetta væri allt saman vegna vanda sjávarútvegsins. Þetta var allt saman til komið vegna þess að samþykkt hafði verið að endurgreiða sjávarútveginum uppsafnaðan söluskatt. Og eins og hv. þm. Kjartan Jóhannsson lýsti hér í kvöld sáu menn þá fyrir sér sérstakar eyrnamerktar krónur sem áttu að fara í það að endurgreiða uppsafnaðan söluskatt hjá sjávarútvegi.
Því var eðlilegt að á fundi fjvn. í morgun væri gengið eftir hugmyndum um það hvernig ætti síðan að borga þessa peninga út. Hvernig eiga þessir margumtöluðu peningar til sjávarútvegsins að greiðast? Þá var í annað sinn komið að tómum kofanum. Þá voru engar fastmótaðar tillögur, það voru ekki einu sinni lauslegar hugmyndir. Þá kom í ljós að það vissi enginn neitt. Það vissi enginn neitt hvernig útdeiling hálfs milljarðs ísl. kr. eftir 14 daga ætti að fara fram, eða a.m.k. fyrstu úthlutanir hálfs milljarðs ísl. kr. Eftir 14 daga á að hefja útdeilingu á þessu fé. Og það er ekki eins og hér sé um að ræða 14 virka vinnudaga, heldur eru flestir þessara 14 daga í jólasælunni og manni sýnist helst að hæstv. ríkisstj. og embættismenn hennar muni þurfa að sitja yfir öll jólin og reyna að finna þær úthlutunarreglur sem á að nota til að borga þennan hálfa milljarð. Þegar betur er gengið eftir og hringt út um allan bæ til að reyna að finna út hvernig helstu hugsuðir stjórnarstefnunnar hafi nú hugsað sér að framkvæma þetta, þá kemur í ljós að það á að greiða hálfan milljarð króna út eftir meðaltalsreikningum um fyrirtæki í veiðum og vinnslu. Og lái nú hver sem vill þeim sem fara að velta því fyrir sér hvort hér sé ekki komið enn á ný velferðarkerfi fyrirtækjanna.
Við höfum samþykkt hér í dag alls konar frv. í peningamálum. Eitt af þeim síðari sem við samþykktum var barnabótaauki fyrir það fólk sem stendur báglega í samfélaginu. Og einhvern veginn sér maður fyrir sér að þessir peningar, sem nú á að fara að greiða út eftir meðaltalsreikningum, hálfur milljarður sem á að greiða út eftir meðtalsreikningum í sjávarútvegi, það sé ekki ólíkt barnabótaaukanum, nema að á því er einn galli. Barnabótaaukanum er þó dreift þannig að í lögunum um hann eru reglur sem beina fénu eftir ákveðnum brautum, þangað sem þess er helst þörf. Við sjáum það á útreikningum og upplýsingum, sem lagðar voru fram í n. í dag, að það virtist hafa tekist þó sæmilega. Meðaltalsreikningunum um barnabótaaukann fylgdi nefnilega ákveðin skýring, þannig að fénu væri helst veitt þangað sem þess væri þörf, það virtist mega ráða af úrtaki um það hvernig einstæðir foreldrar nytu þessa fjár.
En hvað skyldi svo verða um velferðarkerfi sjávarútvegsins þegar það tekur á móti þessum 550 milljónum? Það eru engar tillögur og það er reyndar ólíklegt að því fé verði varið til þeirra sem kannske þurfa þess helst. Þetta er fé sem verður dreift mestan part handahófslega eftir einhverjum tölum úr meðaltalsmaskínunum. Svo eru menn að tala um að gæta þurfi aukinnar ábyrgðar manna á rekstri, menn þurfi að standa fyrir sínu, menn þurfi að sýna hvað í þeim býr. Það er verið að tala um að helstu kostir kvótans séu að hann hvetji menn til aukinnar aðgæslu í sambandi við meðferð fjár, að afkoman skáni hjá fyrirtækjunum vegna þess að menn fari betur með fiskinn og menn keyri hægar og eyði minni olíu. En síðan kemur þessi fáránlega aðgerð þar sem hálfum milljarði króna er spreðað út yfir greinina án nokkurrar almennilegrar stýringar. Þá skiptir litlu máli hver sýndi aðgæslu, hver keyrði á hálfu stími, hver sparaði olíu og hver fór vel með fiskinn. Afkoma fyrirtækjanna á endanum hefur ekkert með það að gera hvort menn reyndu að standa sig eins og menn, vegna þess að það verður búið að smyrja þessum peningum, hálfum milljarði, út yfir allt.
Þetta er ekki stjórn ríkis og þetta er ekki vitræn stjórnun ríkisfjármála. Þetta er bara grín, þetta er bara sprell. Algert sprell. Og það er ómögulegt að ætlast til þess að menn taki svona stjórnunaraðferðir alvarlega, allsendis ómögulegt. Það er ómögulegt að menn taki alvarlega yfirlýsingar ríkisstj., sem svona stendur að hlutunum, yfirlýsingar um það að hún sé að brjóta nýjar brautir og brydda upp á nýjum aðferðum. Þetta er svo gersamlega laust við það. Eina atriðið þar sem hefur örlað á einhvers konar nýjum hlutum héldu menn lengi að yrði hið margumtalaða þróunarfyrirtæki ríkisstj. Menn eru reyndar búnir að sjá það lengi í hillingum og það hefur lítið sést af markverðum tillögum. En það virðist vera það helsta sem þessi nýsköpunarríkisstjórn bindur nú vonir sínar við að geti réttlætt þá nafngift sem hún hálfpartinn kaus sér sjálf í byrjun. En það litla sem menn hafa fengið að sjá af sjálfu þróunarkompaníinu bendir síðan til einhverra stórkostlegustu miðstýringartilhneiginga í allra efnahagsstjórn á Íslandi. Það á að safna saman eignarhaldi allra ríkisfyrirtækja inn á einn kontór. Það á að taka Framkvæmdastofnun, það sem verður nýtilegt af henni þegar hv. þm. Tómas Árnason er farinn þaðan út. Það á síðan að taka alla fjárhagssjóði ríkisins saman og setja þetta allt inn á einn kontór. Þetta á að vera umbyltingin, þetta á að vera nýsköpunin.
En svo við snúum okkur aðeins að söluskattinum aftur. Aðferðin við þessa gömlu leið er náttúrlega gamla, góða, gerónýta skattheimtukerfið á söluskatti. Ríkisstj. vílar ekki fyrir sér að fara með þetta skatthlutfall upp í 24%, það er fjórðungur verðs sem bætist ofan á, vitandi samt að innheimtukerfið er svo gerónýtt að það er næstum því móðgun að bjóða þjóðinni upp á það. Á hverjum einasta degi liggur við að þegnum þessa lands sé boðið upp á það að svindla á einn eða annan hátt með þá skattheimtu, hvort sem það er vegna þjónustu eða verslunar. Þessi aðferð við skattheimtu hefur líklega gert meira en nokkur önnur til þess að eyðileggja gjörsamlega skattamóral hér á landi. Það er vitað að söluskattssvikin eru stórfengleg. Bæði er söluskattur innheimtur og aldrei skilað af þeim sem innheimtir og sömuleiðis er söluskattur aldrei innheimtur í einstaka tilvikum. Þá skipta menn gjarnan, má segja, á söluskatti fyrir þann sem kaupir og tekjuskatti fyrir þann sem selur. Þetta er um innheimtuaðferðina. Annar hluti af innheimtumálunum varðar undanþágurnar sem nú orðið fylla heila bók og eru náttúrlega annað stórfenglegt dæmi um það skyndiplástra- og heftiplástraverk þar sem menn hafa um áraraðir potað alls kyns undanþágum og alls kyns sérákvæðum inn vegna stundarþrýstings frá einhverjum hagsmunahópunum. Á endanum eru þeir búnir að gera þessa skattheimtu ekki bara ónýta heldur að hreinu gríni eins og ríkisstjórnarferillinn allur er.
Það er algerlega óviðunandi en kannske ekki neinum að óvörum að þessi langa leit um heimsins höf skyldi nú fara þannig að menn koma aftur, eins og sagði í vísunni, í heimahöfn, þar sem beið þeirra gamli góði söluskatturinn. Gömlu góðu úrræðin ein eru þau sem ríkisstj. hefur gripið til. Og það þykir mér hryggileg niðurstaða. Þótt ég sé enginn sérstakur unnandi þessarar ríkisstj. þá má þjóðin ekki við svona vinnubrögðum öllu lengur.