18.12.1984
Sameinað þing: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2156 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)
218. mál, norskt sjónvarp um gervihnött
Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Ég er ekki orðinn óvanur útúrsnúningum hv. þm. Ellerts B. Schram. Ég kem hér í ræðustól til að mótmæla þeim. Hafi hann vilja til og ef hann starfaði hér í þingnefndum eins og aðrir þm. hefði hann væntanlega átt þess kost að kynna sér brtt. Alþfl. við frv. til útvarpslaga sem gera ráð fyrir afnámi einkaréttar Ríkisútvarpsins. Það eru ómakleg, óviðurkvæmileg ummæli sem hann lét hér falla.
Ég heyri og skil að hann veit ekki mikið um sjónvarp. Auðvitað væri hægt að texta í útsendingu hér þá þætti sem sendir eru í norska sjónvarpinu nema þá.sem eru í beinni útsendingu. Margir þessir þættir eru til, framleiddir fyrir mörgum mánuðum, sumir fyrir mörgum árum og af þeim eru til handrit. Það er vandalaust að texta þá í útsendingu hér.
Ég er síður en svo að hafa á móti því að svona tilraun verði gerð. Ég hef bara bent á það, hv. þm. Ellert B. Schram, að það þurfi að ræða þessi mál hér af fleiri aðilum en menntmrh. landanna og ég held að það sé mjög mikilvægt atriði. Menn geta tekið ákvarðanir um það á ritstjórnarskrifstofum DV að hefja útvarpsrekstur eins og gert var. En ég er þeirrar skoðunar að tveir ráðh. eigi ekki að taka svona ákvarðanir heldur eigi Alþingi að eiga sinn eðlilega hlut að því máli og ræða það.
Ég er líka jafn sannfærður um það að innan fárra ára munum við eiga margra kosta völ í þessum efnum og ég tel það af hinu góða. Allar staðhæfingar um það að Alþfl. sé andvígur auknu frelsi í þessum málum, að við séum andvígir því að menn geti notið kosta tækninnar, eru ómerkilegir útúrsnúningar og fyrir neðan virðingu hv. þm. Ellerts B. Schram.