18.12.1984
Sameinað þing: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2156 í B-deild Alþingistíðinda. (1642)
218. mál, norskt sjónvarp um gervihnött
Gunnar G. Schram:
Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í deilur þeirra tveggja hv. alþm. sem hér hafa talað á undan mér, en ég vil nota þetta tækifæri til þess að fagna því frumkvæði menntmrh., sem er hér til umr. í dag. Hún hefur hafist handa um að Íslendingum gefist kostur á því fyrir mátt tækninnar að sjá sjónvarp frá öðrum löndum um gervihnetti.
Ég flutti hér á síðasta þingi þáltill. um móttöku sjónvarps á Íslandi frá gervihnöttum. Þeirrar till. biðu sömu örlög og þorra slíkra till., sem fluttar eru hér í Sþ., að þær fengust náttúrlega aldrei teknar til umr. né heldur afgreiddar. Það að vísu segir ekkert um ágæti þessarar till. út af fyrir sig, heldur miklu meira um fornaldarleg vinnubrögð sem tíðkast hér á þinginu. Er sannarlega kominn tími til að breyta því þegar þm. koma ekki fram málum, aðeins lítið brot af þeim nær til n. Í þessu felst engin gagnrýni á forseta eða aðra embættismenn Sþ. eða þd. Fyrirkomulagið er einfaldlega úrelt. En nóg um það.
Þetta mál er raunverulega tvíþætt. Menntmrh. hefur brotið upp á einum þætti sem er móttaka frá ákveðnu erlendu ríkissjónvarpi. Út af fyrir sig fagna ég því að málið er þó komið á þann rekspöl. En ég vildi í því sambandi í fyrsta lagi taka undir orð hv. þm. Eiðs Guðnasonar að það er eðlilegt, og ég veit að það er í huga ráðh. einnig, að þetta mál fái allt miklu meiri umr., um það verði fjallað á þingi og raunar tekin ákvörðun um það, alla vega prinsipákvörðun um hvort út í þetta skuli farið.
Ég vildi hins vegar bera fram þessa spurningu: Erum við hér á réttri leið hvað norska sjónvarpið varðar? Það má vel vera þrátt fyrir efasemdir um ágæti þess og bjarnargreiða í samskiptum þjóðanna eins og orðað var hér áðan. En ég vil í fyllstu alvöru beina því til ráðh. og annarra ráðamanna að úr því að tæknin gerir okkur þetta kleift, hvort við ættum þá ekki að líta einnig til annarra gervihnatta og sjónvarpa sem unnt er að ná hér á Íslandi í dag. Þar á ég ekki síst við breska sjónvarpið sem þegar hefur hafið útsendingar sem nást á Íslandi. Á næsta ári einnig þýska sjónvarpið og það franska. Ég held að við eigum alls ekki að einskorða okkur við þessa ágætu frændþjóð okkar en velta hinu fyrir okkur ef við ætlum að leggja dreifingarkerfi íslenska sjónvarpsins undir erlendar sjónvarpssendingar sem út af fyrir sig ég tel að sé mjög æskilegt. En þá held ég að við ættum að líta yfir allt sviðið og ekki síst mundi ég horfa til Englands því að breskt sjónvarp er með ágætustu sjónvörpum, sjónvarpsdagskrám sem fyrirfinnast í Evrópu að Norðmönnum ólöstuðum.
Í öðru lagi held ég að kominn sé tími til að menn átti sig á því að kannske eru þessar umr. algjörlega — (Forseti hringir.) Ég er alveg að ljúka, herra forseti, —algjörlega tilgangslausar í sjálfu sér, vegna þess að nú þegar er unnt að nema sjónvarp beint með hjálp loftnets sem er þó ekki nema fjórir metrar í þvermál. Íslendingar eru þegar byrjaðir að festa kaup á slíkum loftnetum, ekki aðeins hér í Reykjavík heldur víða um land. Þetta er vitanlega framtíðin. Og þá spyrja menn hvorki kóng né prest, hvorki ráðh. né útvarpsráð, heldur nema þetta beint úr gufuhvolfinu. Það er sú þróun sem verður kannske sú mikilvægasta á næstunni. Spurningin er: Eigum við að hafa hemil á henni eða eigum við að setja um hana ítarlegri reglur en gert er í frv. að nýju útvarpslögunum?