18.12.1984
Sameinað þing: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2157 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)
218. mál, norskt sjónvarp um gervihnött
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Það var aðeins til að bera af mér sakir og stilla skap hv. þm. Eiðs Guðnasonar. Ég hélt því ekki fram að Alþfl. væri algjörlega andvígur því að hér ríkti frelsi eða aukið frjálsræði í útvarpsrekstri. En ef þm. tekur það til sín og gerir mér upp þær fullyrðingar sem ekki komu fram í máli mínu þá er ekki við mig að sakast.
Ég sagði áðan að Alþfl. hefði tekið upp þann sið sinn sem hér hefur viðgengist fyrr í haust að vera sífellt að andæfa og reka upp hræðsluáróður í hvert skipti sem talað er um að auka frjálsræði og fjölbreytni á þessum vettvangi. Ég held að það fari ekki á milli mála fyrir þá sem hlýddu á ræðu hv. þm. hér áðan að hann var að andæfa. Hann var með alls kyns athugasemdir og efasemdir um skynsemi þess að þessu máli yrði hrint í framkvæmd. Ég þarf ekki að fjölyrða frekar um það, þeir vita það sem á það hlýddu að það var ekki ofsagt hjá mér þegar ég leyfði mér að segja að hv. þm. Eiður Guðnason hefði verið að andæfa í þessu máli og þvælast fyrir eins og hann hefur þvælst fyrir í útvarpslagafrv. (EG: Það er ekki komin reynd á það, þm.) Það mál hefur verið á dagskrá hér í báðum deildum og líka í Sþ. og þar hefur hv. þm. margoft tekið til máls og tjáð sig um það annars staðar þar að auki. Ég held satt að segja úr því að menn eru að tala um virðingu þm. að það sé fyrir neðan virðingu þessa ágæta manns, sem hefur ágæta þekkingu á útvarpsmálum og hefur yfirleitt rænu á því að taka skynsamlega afstöðu í málum, að halda uppi þessum málflutningi sí og æ þegar útvarpsmál ber á góma.