18.12.1984
Sameinað þing: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2159 í B-deild Alþingistíðinda. (1645)
128. mál, afurðalán bankakerfisins
Fyrirspyrjandi (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Á þessu hausti hefur mikið verið kvartað í landinu yfir háum vöxtum, ofurþungum raunvöxtum af lánum. Margir hafa óttast að þessir háu vextir kynnu að stefna framtíð íslenskra atvinnuvega í verulega hættu, að ekki sé nú talað um stöðuna á mörgu alþýðuheimilinu þar sem fólk stynur undan lánabyrði. Þó hygg ég að á þessu hausti og á s.l. sumri hafi ekki síður verið kvartað yfir versnandi fyrirgreiðslu bankakerfisins í þágu framleiðslunnar í landinu. Það hafa verið að eiga sér stað verulegar tilfærslur á lánum frá Seðlabanka og til viðskiptabankanna, verulegar breytingar á því afurðalánakerfi sem hér hefur verið ríkjandi um langt skeið, en hins vegar hefur hvergi verið að finna neina fullnægjandi greinargerð um stöðu þessara mála né um þær breytingar sem að er stefnt. Það eina, sem menn hafa fundið, er að fyrirgreiðsla bankakerfisins hefur versnað. Og það er sannarlega ekki að ófyrirsynju að ég hef borið fram þessar spurningar:
„1. Hvaða breytingar hafa verið gerðar á afurðalánum Seðlabankans og viðskiptabankanna til atvinnuveganna á undanförnum mánuðum?
2. Hafa þessar breytingar ekki haft í för með sér lakari lánafyrirgreiðslu en áður var?
3. Leiða þessar breytingar til þess að vísað sé í auknum mæli á erlendar lántökur?
4. Er áformað að draga enn frekar úr lánafyrirgreiðslu seðlabankans á næstunni?
Ég vænti þess að í svari hæstv. ráðh. komi jafnhliða fram upplýsingar um hugsanlegar breytingar á bindiskyldu bankanna ef áform eru uppi um að draga úr henni, eins og ég hef nú grun um, enda segir það sig sjálft að þarna er um náskyld mál að ræða, þ.e. annars vegar afurðalánin og hins vegar bindiskylduna. Þau mál hljóta að vera til athugunar í samhengi.