19.12.1984
Efri deild: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (1698)
214. mál, söluskattur
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 10 frá 22. mars 1960, um söluskatt, með síðari breytingum. Frv. þetta var lagt fram í Nd. og hefur hlotið afgreiðslu þeirrar virðulegu deildar.
Með frv. þessu er lagt til að söluskattsauki hækki um 0.5%, eða úr 2% í 2.5%. Heildarsölugjald verður 24% ef frv. þetta nær fram að ganga. Þar af er hinn eiginlegi söluskattur 20%, orkujöfnunargjald 1.5% og söluskattsauki 2.5%.
Frv. er lagt fram til tekjuöflunar í því skyni að minnka fjárhagsvanda ríkissjóðs, sem enn er mikill, þrátt fyrir það átak er gert hefur verið til þess að draga úr útgjöldum ríkisins.
Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1985 er gert ráð fyrir að uppsafnaður söluskattur í sjávarútvegi verði endurgreiddur. Í fjárlagafrv. eru áætlaðar 380 millj. kr. í þessu skyni, en vegna breyttra verðlagsforsendna, sem nú liggja fyrir, má ætla að sú upphæð verði verulega miklu hærri. Áætlað er að sú hækkun sölugjalds, sem hér er ráðgerð, geti fært ríkissjóði 200–210 millj. kr. tekjur á árinu 1985 miðað við verðlagsforsendur fjárlagafrv. Þessi hækkun sölugjalds færir því ríkissjóði ekki nema hluta þess fjár sem það kostar að endurgreiða uppsafnaðan söluskatt til sjávarútvegsins. Með hertum innheimtuaðgerðum og bættu söluskattseftirliti í tengslum við söluskattshækkunina má ætla að viðbótartekjur ríkissjóðs vegna breytingarinnar geti náð 250 millj. kr. Er því ljóst að sameiginleg áhrif söluskattsbreytinga þeirra, sem felast í fjárlagafrv. og í þessu frv., eru ríkissjóði mjög í óhag. Engu að síður þykir ekki fært að hækka sölugjaldið um meira en 0.5%.
Ætla má að hækkun vísitölu framfærslukostnaðar af völdum 0.5% hækkunar söluskattsaukans verði um 0.25%, en hafa ber í huga að matvæli og ýmsar aðrar mikilvægar neysluvörur svo og ýmis þjónusta eru undanþegin söluskatti.
Sögu söluskattsins má í raun rekja allt aftur til ársins 1945, en á því ári var hann innheimtur í formi tímabundins veltuskatts. Árið 1947 var hann síðan endurvakinn og var gildistími laga um hann árlega framlengdur allt til 1960 er núgildandi lög voru samþykkt. Samkvæmt þeim var söluskatturinn í byrjun aðeins 3%, en hann hefur farið hækkandi síðan. Alls hefur hann verið hækkaður níu sinnum á undanförnum 24 árum. Síðast hækkaði skatturinn með tilkomu 1.5% orkujöfnunargjalds úr 22% í 23.5% í apríl 1980. Áður var hann hækkaður í september 1979 úr 20% í 22%.
Að svo stöddu tel ég óþarft að hafa fleiri orð um þetta frv. en geri að till. minni að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.