19.12.1984
Efri deild: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2200 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)
244. mál, tollskrá
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 76 frá 28. des. 1983 um breytingu á lögum nr. 120 frá 31. des. 1976, um tollskrá o. fl. með áorðnum breytingum.
Í athugasemdum við lagafrv. segir: „Með lögum nr. 83/1981 var fjmrh. veitt tímabundin heimild til þess að leggja jöfnunarálag á hús og húshluta í tilteknum tollskrárnúmerum. Gjaldtöku þessari var ætlað að rétta hlut innlendrar húsagerðar gagnvart aukinni samkeppni erlendis frá. Átti álagið að samsvara uppsöfnuðum gjöldum af efnivöru í innlenda framleiðslu, en ýmis hátollavara til húsbygginga ber lægri aðflutningsgjöld ef hún er flutt inn með húsi eða húshluta heldur en hún ber ef hún er flutt inn sérstaklega. Um frekari rökstuðning fyrir jöfnunarálaginu vísast í grg. sem fylgdi frv. því sem varð að lögum nr. 83/1981.
Með lögum nr. 98/1982 var heimild til gjaldtöku þessarar framlengd til ársloka 1983 og með lögum nr. 76/ 1983 var heimildin enn framlengd til ársloka 1984. Forsendur fyrir gjaldtökunni hafa ekki breyst og þykir því eigi fært að fella gjaldið niður um n.k. áramót. Því er lagt til með frv. þessu að gjaldtaka verði framlengd til ársloka 1985.“