18.10.1984
Sameinað þing: 7. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (173)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Eins og ég sagði áðan hafði ég gert ráð fyrir nokkrum fundum núna seinni partinn, sem verða allir tengdir þessari kjaradeilu og eru mjög mikilvægir, og mér þætti leitt ef ég þarf að sleppa þeim. Ég vil því mælast til þess að þessum umr. yrði þá frestað t.d til kvöldsins ef menn vilja. Það er allt í lagi. Ég skal vera hér í nótt og ræða þessi mál einu sinni enn.
En út af því sem hér hefur verið spurt um. Hv. þm. Karl Steinar spurði hvort dregið væri til baka það tilboð ríkisstj. að lækka skatta mjög verulega. Eitt af dæmunum sem við ræddum um var allt að 1100 millj. kr. tekjuskattslækkun og 300 millj. kr. útsvarslækkun. Það hefur út af fyrir sig alls ekki verið dregið til baka og ríkisstj. er enn þeirrar skoðunar að skattalækkun væri skynsamlega leiðin. Hins vegar bendir æðimargt til þess að samningar svipaðir og þeir sem gerðir hafa verið núna, ekki bara í Reykjavík, heldur í Kópavogi, á Sauðárkróki og Ísafirði og eru núna til umræðu í mörgum sveitarfélögum, verði hin almenna regla hjá sveitarfélögunum. (Gripið fram í: Keflavík.) Ég veit ekki hvort búið er að semja í Keflavík en þeir eru þar til umræðu líka.
Þá vaknar vitanlega sú spurning: Er sú leið fær að lækka skatta um þrefalt meira en gert er ráð fyrir í þeim samningum og hvað þýðir það þá fyrir efnahagslífið? Hvað þýðir það fyrir verðbólguna og fyrir þensluna því að lækkun skatta eykur vitanlega einnig fjármagnið í umferð? Og mundu þá félagar í Verkamannasambandinu t.d sætta sig við það að í raun og veru eru þeir sem áður hafa samið í þjónustugreinum og opinberum greinum komnir með töluvert meiri kjarabætur? Mundu þeir sætta sig við það? Ég hef mínar efasemdir um það. (KSG: Það kemur ekki til greina.) Já, það er rétt. Ég skil það mætavel. Það kemur nefnilega ekki til greina. Ef skipta á jafnt á milli þjónustugreinanna og félaga í Verkamannasambandi Íslands eru menn að tala um að semja um sömu peningalaunahækkun, 16–19%, og síðan enn meiri skattalækkanir. Þetta er vandinn sem við stöndum frammi fyrir og vandi sem ég hef m.a. hugsað mér að fara að ræða við ýmsa aðila núna á eftir. Tilboðið er samt alls ekki dregið til baka þó að sjá megi ýmsa erfiðleika í framkvæmd þess núna.
Því var haldið fram að ég væri með yfirlýsingar um að draga ætti þessar kjarabætur, sem kallaðar eru, til baka. Hvaða kjarabætur? Ég spurði að því áðan hvort ekki yrði að gera ráð fyrir að svipaðar hækkanir yrðu á hinum almenna markaði og hvort verkamenn og menn í frystihúsum mundu sætta sig við minna. Varaformaður Verkamannasambands Íslands hefur svarað úr sínu sæti að annað komi ekki til greina og Verkamannasambandið gefur út yfirlýsingu og segir að það séu engar raunverulegar kjarabætur. Hvað meina þeir þá með því? Og það er fróðlegt að hlusta á menn standa hér upp og lýsa furðu sinni á því að samningur upp á 16–18%, á sama tíma og þjóðarframleiðslan hefur dregist saman um 9% og aðeins gert ráð fyrir vexti hennar um 1% á næsta ári, geti staðist.
Ríkisstj. er reiðubúin að leita allra leiða og mun að sjálfsögðu gera það til að koma í veg fyrir að þetta hafi verulega verðbólgu í för með sér. En hlýtur ekki strax að hækka útseld vinna t.d? Útseld vinna hækkar undir eins og alls staðar þar sem vinnuliðurinn vegur eitthvað hlýtur að verða hækkun á vöruverði. Ég held að menn hljóti að hafa þá reynslu af áratuga víxlhækkunum verðlags og launa í öllum ríkisstjórnum, hverjar sem hafa verið, að ef ekki stendur framleiðsla að baki leiðir það til verðbólgu. Nú verðum við að glíma við það hvernig við getum komist sem allra mest hjá þeim afleiðingum.
Svavar Gestsson: Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta og forsrh. fyrir þessa umræðu. Ég held að hún hafi verið gagnleg. Hún skýrir tvennt sem er aðalatriðið. Í fyrsta lagi felst í orðum forsrh. hótun um að allt verði tekið aftur sem samið verður um í þeim kjarasamningum sem nú standa yfir. Í öðru lagi er niðurstaðan sú, að ekki er hægt að gera neina kjarasamninga undir þessari ríkisstjórn öðruvísi en að rækilega sé gengið frá öllum tryggingum.