19.12.1984
Neðri deild: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2227 í B-deild Alþingistíðinda. (1741)
205. mál, eftirlaun til aldraðra
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. hefur legið hér til afgreiðslu í báðum þingdeildum og nefndum beggja þingdeilda. Í Ed. fylgdi ég því úr hlaði með mjög ítarlegri ræðu, bæði um efni og framkvæmd þessara laga og sömuleiðis um afleiðingar þess ef lögin væru látin falla úr gildi um næstu áramót. Og í ræðu hv. frsm. n. kom fram sá gífurlegi fjöldi fólks í stéttarfélögum sem nýtur eftirlaunagreiðslna.
Mér koma mjög á óvart ummæli hv. 5. þm. Reykv. Í fyrsta lagi get ég auðvitað ráðlagt bæði þessum hv. þm. og öðrum, ef þeir hafa sérstakan áhuga fyrir einhverju máli, að vera þá viðstaddir umr. Látum það nú vera með umr. Hitt er öllu lakara þegar sömu áhugamenn eru í nefnd og hv. þm. í þessu tilviki eini nm. fyrir sinn flokk og ekki lítil ábyrgð sem á honum hvílir og þegar þar við bætist að hann er formaður í sínum stjórnmálaflokki að láta ekki sjá sig í nefndinni, en kemur svo hér í ræðustól og lætur rigna yfir þingheim spurningum alveg hreint í stórum stíl. Það var heilt syndaflóð af spurningum sem kom af munni hv. þm. Flestum þessum spurningum var svarað við 1. umr. málsins í Nd. og ég ætla ekki að fara að þreyta þm. á því að endurtaka það. Ég ætla bara að benda hv. þm. á að lesa þá í þingtíðindum um þau svör og þær skýringar. Mér er alveg sama þó að lífeyrissjóðurinn hafi mótmælt. Hann er eini aðilinn sem hefur mótmælt. Átta manna nefndin ... (Gripið fram í: Og hvers vegna mótmælti hann?) Ja, það var af fjármálalegum ástæðum sjóðsins, en ekki af því að hann væri á móti því að þessar eftirlaunagreiðslur ættu sér stað. — En á bak við þetta er lífeyrissjóðanefndin sem óskar eftir að frv. verði lagt fram að nýju og til fimm ára. Það koma hér ákveðnar skýringar, að þá var talið að ekki yrði um fleiri að ræða. Það voru bjartar áætlanir á sínum tíma. Hins vegar get ég tekið undir það með hv. þm. og það er rétt og það er það eina sem mér fannst vera rétt og athyglisvert í hans máli, að það er auðvitað til skammar hvað þessi endurskoðun er búin að taka langan tíma. Þessi endurskoðunarnefnd var sett á laggirnar í tíð ríkisstjórnarinnar sem sat 1974–1978, ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar, og fór nokkuð vel af stað vinna nefndarinnar. En því miður verður að segja að eftir þann tíma hefur lítið miðað. Það er rétt hjá hv. þm. og það er stórt atriði í málinu, en það er miklu stærra afriði en þetta frv. nær til.
Ég tel það vera mjög mikilvægt þegar heildarsamtök launþega, eins og Alþýðusamband Íslands, Sjómannasamband Íslands, Vinnuveitendasamband Íslands, Vinnumálasamband samvinnufélaganna, eru á eitt sátt um að óska eftir því að þetta frv. verði flutt og með þessum hætti.
Það má segja að það sé ákaflega erfitt fyrir menn að skilja tæknilega hlið á þessum málum. Hins vegar skilja flestir þá einföldu formúlu sem liggur á bak við eftirlaunin. Ég er ekki ráðh. sem hef neitt vald yfir lífeyrissjóðunum eða samræmingu bóta þeirra. Þeir hafa sína sjálfstæðu stöðu og taka sínar sjálfstæðu ákvarðanir í sínum stjórnum. En ég tel að þetta mál sé það brýnt að hjá því verði ekki komist að það nái fram að ganga þrátt fyrir þessi einu mótmæli. Ég held að hitt væri aðalatriði málsins að leggjast ekki á þessar bætur, láta þær ekki falla niður. Þá mundi margur eiga um sárt að binda. Á seinni stigum málsins hafa komið inn nýir aðilar eins og Lífeyrissjóður bænda eftir að hann varð til. Það fólk mundi fara illa út úr því ef lögin yrðu ekki framkvæmd með þessum hætti ásamt mörgum fleirum. Það eru líka nokkrir aðrir sjálfstæðir fyrrverandi atvinnurekendur sem líkt er á komið um og t.d. meðlimi Lífeyrissjóðs bænda.
Ég vil vekja athygli á því að lögunum um eftirlaun aldraðra í stéttarfélögum frá 1975 var ætlað að gilda til ársloka á þessu ári. Þá var við það miðað að liðin væru 15 ár frá því samið var um stofnun lífeyrissjóða verkalýðsfélaganna og hefðu þeir að þeim tíma liðnum fengið bolmagn til að taka sjálfir á sig þessar greiðslur, jafnframt því sem þá hefðu allir þeir sem lögin gerðu ráð fyrir að öðluðust eftirlaunarétt náð 70 ára aldri. Í lögunum frá 1979 er einnig kveðið á um að eftirlaunagreiðslur falli niður 1. jan. 1985 og ákvæði um greiðslu uppbótar á lífeyri náðu upphaflega til áranna 1980–1982, en voru síðar framlengd til ársloka 1984. Auk þessara sjónarmiða, sem ég nú hef getið um og ríktu upphaflega við setningu laganna frá 1971, var m.a. haft í huga að þá stóð yfir heildarendurskoðun á málefnum lífeyrissjóðanna og þá var talið að þeirri endurskoðun yrði lokið. Ég tel óvarlegt að framlengja þessi lög til tveggja ára. Ég sé ekki að sá hraði verði á lífeyrissjóðamálum að það verði búið. Jafnvel þó að röskur maður eins og formaður Alþfl. tæki sig til og gerðist formaður í þessari lífeyrissjóðanefnd dreg ég mjög í efa að hann muni klára það á tveimur árum.