19.12.1984
Neðri deild: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2242 í B-deild Alþingistíðinda. (1755)
192. mál, málefni aldraðra
Frsm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ef ætti að fara að ræða þennan málaflokk efnislega, eins og sumir hv. þm. hafa verið að gera, mætti halda uppi löngum tölum. Ég ætla ekki að gera það að þessu sinni. Ég vil hins vegar láta það koma fram að ég er ánægður með þá yfirlýsingu sem hæstv. fjmrh. í samráði við heilbrmrh. gaf hér áðan í sambandi við vandamál sem enn eru óleyst, sérstaklega B-álmu Borgarspítalans í Reykjavík.
Ég tel nauðsynlegt að um leið og við gefum slík fyrirheit verði líka það heit tekið af þeim sem byggja það húsnæði að því verði varið í þágu aldraðra en ekki til annars, því að meginhluti þeirra fjármuna sem hafa farið til þeirrar byggingar hefur einmitt verið tekinn í gegnum nefskattinn til þessa málefnis.
Vegna þeirrar gagnrýni sem kom hér fram hjá ræðumanni á það að mikið sé byggt á höfuðborgarsvæðinu þá er alls ekki eina skýringin sú að hér sé hátt hlutfall aldraðra. Það er miklu fleira sem þessu veldur. Nú fyrir stuttu var þetta rætt á fjölmennu þingi sem ég sat. Ég benti þar m.a. á þær staðreyndir að hér í Reykjavík eru þúsundir íbúða í eigu manna sem starfa víðs vegar um land meginhluta sinnar starfsævi og hafa alltaf við hún þá fullvissu að þeir muni flytjast hingað á höfuðborgarsvæðið þegar þeirra starfsævi lýkur. Þeir eiga sínar íbúðir hér, hafa leigt þær meðan þeir voru við störf víðs vegar um landið, eins og ég sagði, og koma hingað á efri árum og hafa þá að sjálfsögðu full réttindi hér sem borgarar í Reykjavík eða nágrannabyggðum og sækjast þá eftir þeirri þjónustu sem þeir þurfa á að halda sem slíkir. Það eru tugir sveitarfélaga víðs vegar um land sem hafa ekki nokkra möguleika á því að halda uppi slíkri þjónustu sem þarf að veita á umönnunar- og hjúkrunarstigi aldraðra, það er bara ekki nokkur leið. Þess vegna hafa sveitarstjórnarmenn þessara sveitarfélaga talið fullt eins eðlilegt að gamalmenni úr þeirra byggðum kæmu hingað á höfuðborgarsvæðið eins og að vera að setja þau einhvers staðar á aðra Fúluvík en þeir komu frá. Það á ekki að vera nein hugsjón hjá mönnum að sveitfesta gamalt fólk í sinni sveit ef það vill fara. Ef það vill flytja á suðlægari breiddargráðu, hingað á höfuðborgarsvæðið þá á ekki að banna því það, það á að lofa því að flytja.
Til viðbótar ætla ég að benda á tvær staðreyndir sem öllum á að vera kunnugt um. Annars vegar er það að á þessu svæði eru allar meginheilbrigðisstofnanir, sjúkra- og spítalastofnanir, sem gamalt fólk þarf að sækja til. Hér er góð augnlæknaþjónusta og önnur sérhæfð þjónusta sem fólk einmitt óttast að það verði af ef það býr í afskekktum héruðum. Ég lái ekki því fólki þó að það vilji flytja sig til og njóta þessarar þjónustu í ellinni. Til viðbótar þessu sækir þetta gamla fólk hingað á eftir börnum sínum og vinum sem flytjast á þetta svæði. Það er ekki gamla fólkið sem dregur yngra fólkið á eftir sér hingað á Suðvesturlandið. Það er öfugt. Þegar það er orðið eitt heima og allir þeirra nánustu farnir hingað á höfuðborgarsvæðið, þá er ekkert verið að gera vel við þetta fólk með því að segja: Þú skalt vera heima á þínum gamla stað. Við erum búnir að byggja yfir þig elliheimili og dvalarheimili. Vertu kyrr. — Við eigum að lofa fólkinu að ráða og fara ef það vill. Við eigum að skapa þá aðstöðu og vonandi kemst þessi þjónusta á það stig í þjóðfélaginu að þetta verði hægt.
Það er rétt, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, að hjúkrunarrými, eða við skulum heldur tala um sjúkrarými aldraðra þar sem eru spítaladeildir og síðan hjúkrunar- og umönnunarrými, þetta er auðvitað hið brýna mál. Ég hef þá trú að dvalarheimilin í sinni mynd muni fjarlægjast hugi manna á næstu árum og það fari meira í þá áttina að byggt verði yfir fólk eða því hjálpað til að byggja, að félagasamtök, einstaklingar eða hið opinbera, sveitarfélög og ríki, byggi svokallaðar verndaðar þjónustuíbúðir og þangað verði þjónustan flutt. Byggð verði sérhönnuð hús og íbúðir þar sem hægt er að veita þessa þjónustu eins og á dvalarheimili eða hjúkrunarheimili væri. Mér sýnist að þetta sé sú stefna sem nú er að verða ráðandi bæði hér í nokkrum nágrannalöndum okkar og eins fyrir vestan haf. En eins og ég sagði, mitt erindi hingað upp var vegna þess nál. sem ég skrifaði upp á sem aðili að heilbr.- og trn. Ég uni þessari yfirlýsingu þeirra ráðherra og treysti því að við hana verði staðið svo að raungildi þess sem fer til þessara mála verði ekki minna á næsta ári en á því ári sem nú er að líða.