19.12.1984
Neðri deild: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2246 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)
187. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. á þskj. 336 við þetta þingmál, 187. mál þessa þings, en meðflm. minn er hv. þm. Kristín Halldórsdóttir. Brtt. er við 3. gr. frv. sem orðist svo, með leyfi forseta:
„1. mgr. 67. gr. laganna orðist svo:
Tekjuskatt manna, sem skattskyldir eru skv. 1. gr. og hafa verið heimilisfastir hér á landi allt tekjuárið, skal reikna af tekjuskattsstofni þeirra skv. 1. og 3. tölul. 62. gr. í þremur þrepum sem hér segir:
1. þrep: Af þeim hluta tekjuskattsstofns, sem ekki er yfir 200 þús. kr., skal reikna 20%.
2. þrep: Af þeim hluta tekjuskattsstofns, sem umfram er það tekjumark sem nefnt er í 1. þrepi en ekki er yfir 400 þús. kr., skal reikna 31%.
3. þrep: Af þeim hluta tekjuskattsstofns, sem er umfram 400 þús. kr., skal reikna 44%.
Frá þannig reiknuðum tekjuskatti skal síðan dreginn persónuafsláttur skv. 66. gr. Sú fjárhæð, sem þannig fæst, telst tekjuskattur ársins.“
Brtt. er sem sé í því fólgin að fella niður það ákvæði er leyfir millifærslu á ónýttum hluta af fyrsta skattþrepi milli hjóna, þ.e. frá hinu tekjulægra til hins makans sem tekjuhærri er. En í athugasemdum við lagafrv. segir, með leyfi forseta, „að þetta sé gert til þess að draga nokkuð úr þeim mismun sem er milli samanlagðra skatta hjóna með hliðstæðar heildartekjur, eftir því hvernig tekjuöflun skiptist milli hjónanna innbyrðis.“
Það er eðlilegt að mönnum þyki það óréttlátt að heildartekjur heimila skuli skattlagðar misjafnlega eftir því hvernig þeirra er aflað. Fyrir heimilið sem einingu er þar gerð mismunun. Hins vegar er mjög erfitt að taka á þessu máli með réttlátri löggjöf og því skora ég á menn að gaumgæfa vel þá stýringu og þann óbeina þrýsting sem skattalöggjöf hefur á hegðun manna og lífsmynstur. Sanngjörn sköttun einstaklinganna til samneyslu þjóðfélagsins er ekki auðvelt verkefni og þarf margs að gæta til að virðing gagnvart réttindum eins verði ekki að broti á réttindum annars.
Það er grundvallarskoðun okkar, sem erum flm. að þessari brtt., að hver einasti fullorðinn einstaklingur eigi að geta verið fjárhagslega sjálfstæður aðili og líta beri á hann sem slíkan, einnig gagnvart lögum, skattalögum sem og öðrum lögum. Efnahagslegt sjálfstæði kvenna er líklega einn mikilsverðasti þátturinn til að tryggja sjálfstæði kvenna til að eiga raunverulegt val um lífsferil sinn og viðfangsefni. Það er á þessum forsendum sem við kvennalistaþm. tökum afstöðu til þessa samsköttunarákvæðis sem við gerum hér brtt. um. Það er einnig á þessum sömu forsendum sem við teljum það eðlilegt og rétt að viðurkenna fjárhagslegt sjálfstæði kvenna með því að þær séu sjálfstæðir skattgreiðendur. Þó er afar nauðsynlegt að þegar tekið er tillit til réttinda þeirra kvenna, sem sækja vinnu og laun úti á vinnumarkaðinum, verði það ekki til þess að skerða réttindi þeirra kvenna, sem eru heimavinnandi. Slíkt er óeðlilegt og ónauðsynlegt.
Við teljum reyndar að sú samsköttun hjóna, sem tilgreind er í 3. gr., sé frá sjónarmiði fjárhagslegs sjálfstæðis giftra kvenna tvímælalaust spor aftur á bak. Við teljum að þrátt fyrir það að þetta ákvæði taki tillit til ákveðins fjölda heimila og geri þeim auðveldara fyrir sé þarna ekki verið að auka á réttindi þeirra sem heimavinnandi eru. Heimavinnandi makinn fær í raun ekki beina umbun vinnu sinnar, heldur fær sá sem útivinnandi er afslátt fyrir það að hafa heimavinnandi á framfæri sínu.
Sá heimavinnandi, langoftast konan, verður þannig eins konar viðhengi maka síns og nýtist heimiliseiningunni vel til skattafrádráttar fyrir útivinnandi og tekjuhærri makann. Þar sem tekjur kvenna eru almennt jafnlágar og raun ber vitni er þarna opin leið fyrir óbeinan þrýsting á konur til að vera heimavinnandi en slíkt á og verður að vera val kvenna jafnt sem karla. Ef sú hugsun býr að baki þessa ákvæðis að viðurkenna nú í einhverju þau ólaunuðu störf sem unnin eru inni á heimilinu, heimilisstörfin, þá er framkvæmd þeirrar hugsunar ómarkviss.
Í fyrsta lagi er hér einungis tekið tillit til þess sambúðarforms sem er kjarnafjölskyldan eða hjón. Hér er ekki tekið tillit til annarra sambúðarforma, t.d. þar sem blóðskyldir eða óskyldir einstaklingar búa saman án þess að um kynferðissamband sé að ræða, en þar sem annar aðilinn er heimavinnandi.
Í öðru lagi má segja að ekki sé tekið tillit til heimilisstarfa á heimilum þar sem báðir makar eru útivinnandi. Hvergi nema í ævintýrunum gera slík störf sig sjálf, en hafa ævinlega þá náttúru að sjást helst ef þau eru ekki unnin. Nýlegar kannanir hafa leitt í ljós að konur vinna þessi störf á heimilum sínum í langtum ríkari mæli en karlar þegar lokið er vinnu utan heimilis. Þær gegna því langflestar nær tvöföldu vinnuálagi að þessu leyti.
Það má því segja að þessi tilraun til viðurkenningar á hlutverki þess maka, sem heimavinnandi er, sé ómarkviss að því leyti að hún eykur ekki rétt hins heimavinnandi og tekur ekki fullt tillit til réttinda annarra. Hins vegar er afar brýnt að leiðrétta hlut þeirra sem heimavinnandi eru og viðurkenna framlag þeirra. Við skulum ekki gleyma því að þau störf, sem unnin eru launalaust inni á heimilum landsins nær oftast í hinum margnefnda kyrrþey, eru aldrei talin með í hagskýrslum. Þau eru aldrei viðurkennd sem verðmætasköpun í þjóðfélaginu. Hvað skyldu liggja þar mörg dagsverk og hve mikil yrði sú eftirvinna, kvöld-, nætur- og helgidagavinna ef metin yrði til fjár? Þessi vinna, svo mikilsverð og lífsnauðsynleg sem hún er, hefur aldrei verið metin til hagsældar. Hins vegar hefur hún orðið til ómældrar farsældar fyrir þjóðina og það skyldu menn muna að hagsæld og farsæld fara ekki endilega saman.
Það er vitanlega óviðunandi og smánarlegt að þeir sem eru heimavinnandi að aðalstarfi skuli ekki njóta lífeyrisréttinda eða eðlilegra tryggingabóta. Sömuleiðis er nauðsynlegt að virða í verki og meta til verðmæta fyrir þjóðfélagið vinnuframlag þeirra. Við teljum þó ekki að slíkt verði best gert á þann hátt sem hér er lagt til, en leggjum til að það verði gert með öðrum leiðum.
T.d. er nauðsynlegt að mæta kröfum heimavinnandi um lífeyrisréttindin og önnur réttindi, t.d. tryggingabóta. Jafnframt þykir okkur líka sjálfsagt og eðlilegt að tillit sé tekið til barna og foreldra með auknu og lengdu fæðingarorlofi. Þá erum við einmitt komin að því sem kalla mætti kjarna málsins. Langsamlega algengasta ástæðan fyrir því að annar makinn og þá langoftast konan er heimavinnandi um lengri eða skemmri tíma er nefnilega sú að hún er að annast börn.
Það er að jafnaði tímabundið skeið í lífi fjölskyldunnar að foreldrar eða forráðamenn eru bundnir af umönnun barna sinna. En þetta tímabil er mislangt í lífi hverrar fjölskyldu og hefðbundin hlutverkaskipting hefur ráðið því að móðirin sinnir þessu umönnunarhlutverki umfram föðurinn. Ein vænlegasta leiðin til að mæta þörfum heimavinnandi teljum við því að sé að auka barnabætur. Þannig viðurkennir þjóðfélagið nauðsyn þess að hlúa að börnum og um leið fá foreldrar og forráðamenn val um það hvernig þau standa að því, hvort þau vilja sinna því sjálf eingöngu eða greiða einhverjum fyrir barnagæslu. Því völdum við þm. Kvennalista að leggja það til að sú upphæð, sem hér er ætluð til millifærslu milli hjóna, þ.e. um 200 millj. kr., yrði fremur nýtt til þess að hækka barnabætur og fluttum þess vegna jafnframt brtt. á þskj. 335 við frv. til l. um barnabótaauka, þar sem lagt er til að sérstakur barnabótaauki hækki frá 15 þús. upp í 30 þús. En skv. útreikningum Reiknistofnunar Háskólans yrði kostnaðarauki samfara þessari hækkun rúmlega 200 millj. kr. Því miður var þessi brtt. felld þegar fjallað var um þetta þingmál.
Enn önnur leið til að viðurkenna starf heimavinnandi er að meta starfsreynslu þeirra þegar út á vinnumarkað kemur eins og aðra starfsreynslu í þjóðfélaginu. Minni ég í því sambandi á þáltill. Kvennalista sem liggur fyrir þessu þingi og fjallar um þetta mál. Tveir kaupstaðir hafa þegar stigið skref í þessa átt, Kópavogskaupstaður og Akureyrarkaupstaður, og er það vel. Enginn hefur enn farið fram á það hér á Alþingi að laun verði greidd fyrir þau heimilisstörf og þá barnaumönnun sem innt er af hendi launalaust inni á heimilum landsmanna þeim til ómældrar farsældar. Ef konur almennt færu fram á slíkt yrði eins víst að rammar efnahagskerfanna mundu springa og menn yrðu að smíða sér ný kerfi til að leita hagsældar.
Ég vil að lokum taka undir orð hv. þm. Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur í umr. um þetta mál í Ed. og ítreka þá skoðun okkar að fjárhagslegt sjálfstæði kvenna er einn mikilsverðasti þátturinn í sjálfstæði kvenna yfirleitt og þetta sjálfstæði ber að virða í skattalögum sem og annars staðar. Skattalögin eiga ekki að vera stýrandi, hvorki á þann veg að reka konur af heimilum sínum út á vinnumarkað né heldur að reka þær inn á heimili sín. Slíkt hlýtur og á að vera raunverulegt val einstaklinganna.
Hægt er að koma til móts við konur annars vegar úti á vinnumarkaðinum með hærri launum, endurmati á störfum þeirra og aukinni dagvistarþjónustu og hins vegar inni á heimilum þeirra með fullnægjandi mati á heimilisstörfum og með þeim hætti að þeir sem störfin vinni njóti ótvírætt afraksturs þeirra sjálfir.
Ég veit að það er ekki auðvelt verk að sníða skattalöggjöf um þessi mál svo að gætt sé réttlætis gagnvart öllum. Því bið ég hv. þm. og aðra þá sem um þessi mál fjalla að íhuga vel þau sjónarmið sem ég hef hér sett fram og hafa reyndar einnig verið sett fram af Kvenréttindafélagi Íslands og Jafnréttisráði í umsögnum um þetta mál. Jafnframt vil ég biðja hv. þm. að athuga það að þessi þingmál bæði, 187. mál þessa þings og 188. mál, snerta í raun grundvallaratriði í hugmyndafræði um kvenfrelsi.