19.12.1984
Neðri deild: 33. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2250 í B-deild Alþingistíðinda. (1762)
187. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Aðeins nokkur orð. Ég reyndi að leggja áherslu á það í máli mínu að ég teldi það afar mikilvægt þegar verið væri að smíða skattalöggjöf að það yrði gert á sem réttlátastan hátt og reynt yrði að forðast það að skerða réttindi annarra þó að réttar einstaklinganna yrði gætt. En ég vil taka það skýrt fram að þessi afstaða okkar varð ekki fyrir neinn þrýsting. Við tókum hana áður en okkur var kunnugt um afstöðu annarra einstaklinga eða samtaka og hún varð niðurstaðan af eins mikilli umhugsun og okkur tókst að hafa um málið á þeim stutta tíma sem gafst til umfjöllunar.
Ég vildi beina athygli hv. 10. landsk. þm. að því að úrræði okkar var að koma til móts við þá sem reka heimili og eiga börn með því að nota þessar 200 millj. til að auka barnabæturnar um helming. Á þann hátt nýttust þær best þeim sem verst efnin hafa og börnin eiga. Og eins og ég sagði í máli mínu þá er það langoftast meginástæðan fyrir því að konur eru heima að þær eiga börn. Fjármunirnir ættu þess vegna að koma þeim til góða.
Ég tók eftir því að hv. þm. sagði: Heimilið hans. Konan, eiginkona hans, væri heima til að hugsa um heimilið hans, sjómannsins, og það væri val hennar. Ég er ekki viss um það — (GHelg: Ég óska eftir að þessu verði breytt í þskj. og verði „þeirra“.) Já, ég er mjög þakklát, ánægð með það. En jafnframt er ég ekki viss um, hv. þm., að það sé endilega val þessarar eiginkonu að þurfa að reka heimilið ein vegna þess að vinnutíma eiginmannsins sé þannig háttað. Ég er ekkert viss um að það væri hennar hjartans val ef hún í raun gæti valið. Og það sem við erum að leggja til hérna er að auka raunverulega valmöguleika. ég veit að það er lítill tími núna, en ég vil biðja hv. þm. um að lesa gaumgæfilega yfir það sem ég sagði þó að ég hafi e.t.v. ekki tjáð mig nógu skýrt. Annað ætlaði ég ekki að segja.