20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)

Umræður utan dagskrár

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það voru vissulega mögur svör sem hér komu fram við fsp. Ég þakka viðleitnina af hálfu hæstv. utanrrh., en hann er hér með tunguhaft NATO á sér, tunguhaft sem hann virðist ekki hafa gert sér grein fyrir að hann var bundinn við umr. hér 6. des. og fær nú þess vegna snuprur fyrir. Ég tel nauðsynlegt að hér liggi fyrir í þingtíðindum svar Bandaríkjastjórnar orðrétt svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Eins og mér er ljóst að yður er kunnugt hefur það um langt árabil verið fastmótuð stefna Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna að játa hvorki né neita heimildargildi skjala sem sögð eru trúnaðarskjöl Bandaríkjanna eða bandalagsins. Um leið hefur mér verið falið að ítreka að Bandaríkin hafa í einu og öllu farið eftir og munu halda áfram að fara eftir ákvæðum varnarsamningsins við Ísland frá 1951 og samþykkt Atlantshafsbandalagsins varðandi staðsetningu kjarnavopna sem áskilja að sérhver heimild til Bandaríkjahers til að flytja kjarnavopn til Íslands mundi aðeins verða veitt að fengnu samþykki íslensku ríkisstjórnarinnar.

Í samræmi við þetta hefur mér verið falið að fullvissa yður um að bandarísk stjórnvöld halda enn fast við þann gagnkvæma skilning ríkisstjórna okkar varðandi kjarnavopn sem fram kom í bréfi dags. 11. ágúst 1980 til dr. Ólafs Jóhannessonar utanrrh. Íslands.“

Þetta er allt svarið sem berst við ósk hæstv. ráðh. um ítarlegar skýringar.

Meginatriði þessa máls er að sjálfsögðu: Eru bandarísk hermálayfirvöld með Ísland inni í kjarnorkuvopnaáætlunum sínum eða ekki, alveg burtséð frá því hvort þau ætla á degi X að spyrja Íslendinga um leyfi hvort þeir megi flytja þessi vopn hingað eða ekki? Þess vegna er það grundvallaratriði: Er Ísland inni í kjarnorkuvopnaáætlunum NATO og Bandaríkjanna? Við því verða hér að fást skýr svör.

Hér var réttilega spurt: Hefur hæstv. ráðh. kynnt sér þessar kjarnorkuvopnaáætlanir eins og hann hefur rétt til? Við hljótum að ganga eftir því og ég spyr um það, ítreka það sem hér kom fram áðan: Hefur hann kynnt sér þær? Mun hann kynna utanrmn. vitneskju sína þar að lútandi? Og ég segi hér að lokum: Við hljótum að gera kröfu til þess, íslenskir alþm., að fá fyllstu gögn um þessi efni inn í þá nefnd þingsins sem á að fjalla um utanríkismál. Ég treysti því að hæstv. ráðh. stuðli að því að svo geti orðið og þá ekki aðeins þýðingar heldur líka frumtexta af þeim gögnum sem hafa farið á milli svo sem nauðsynlegt er í slíku alvörumáli.