20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
238. mál, frestun á fundum Alþingis
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég vil vegna þessarar þáltill. nefna það hér að í umr. á Alþingi og raunar einnig í utanrmn. hefur komið fram af hálfu hæstv. utanrrh. að hann vinni að því að ákvarðanir verði teknar vegna ratsjárstöðva, nýrra og endurnýjaðra, hérlendis í byrjun næsta árs, ársins 1985. Hér á Alþingi liggur fyrir till. til þál. um þetta efni og ég tel alveg nauðsynlegt í tengslum við þessa till. um frestun á fundum Alþingis að það komi fram af hálfu ríkisstj. og hæstv. utanrrh. að ekki sé áformað að taka neinar bindandi ákvarðanir í tengslum við þessar ratsjárstöðvar á þeim tíma sem þingið ekki situr og áður en sú þáltill. sem varðar þetta mál hefur fengið þinglega meðferð. Ég óska eftir svörum við þessu efni.