20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2331 í B-deild Alþingistíðinda. (1840)

238. mál, frestun á fundum Alþingis

Þorsteinn Pálsson:

Herra forseti. Til að skýra það mál sem hér hefur verið vakin athygli á vil ég vitna til ummæla minna í umræðum sem fram fóru um stefnuræðu forsrh. Þar sagði ég eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:

„En ég tel að það gæti verið rétt, í því skyni að treysta heilbrigða samvinnu stjórnar og stjórnarandstöðu og til þess að stuðla að málefnalegum umræðum, að sett verði niður nefnd þessara aðila, og hugsanlega einnig með þátttöku aðila vinnumarkaðarins, er hefði það verkefni að gera ítarlega úttekt á tekjuskiptingu og hlutdeild launa í verðmætasköpun og þjóðartekjum. Sú vinna gæti komið að gagni fyrir endurnýjun kjarasamninga á næsta ári. Ég mun beita mér fyrir því að þetta verði gert og stjórnarandstaðan fái aðild þar að.“

Sú hugmynd sem hér er á ferðinni lýtur að þeim umr. sem átt hafa sér stað í þjóðfélaginu þess efnis að verulegar breytingar hafi orðið í tekjuskiptingu þjóðarinnar og til að slíkar umr. geti farið fram þannig að menn hafi staðreyndirnar fyrir framan sig, er nauðsynlegt að gera á því ítarlega könnun hver hefur orðið hugsanleg breyting á tekjuskiptingu, hvernig þróun tekjuskiptingar hefur verið á undangengnum árum, hugsanlega undangengnum áratug, hverjar hafa verið launatekjur þjóðarinnar í hlutfalli við verðmætasköpun og þjóðartekjur. Hér er um að ræða afar mikilvægar upplýsingar fyrir umr. af þessu tagi og ég tel mjög eðlilegt að könnun á þessu efni geti farið fram með aðilum vinnumarkaðarins og stjórnmálaflokkana, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Ég tel að slík könnun muni leiða til málefnalegri umr. hér á Alþingi og auðvelda gerð kjarasamninga. Og ég treysti því að hæstv. ríkisstj. hafi frumkvæði að því að þessi nefnd verði sett á laggirnar og að tekist geti víðtæk samstaða um að framkvæma þetta mat. Hér er hins vegar ekki um að ræða einhverja allsherjar samstarfsnefnd um stjórn efnahagsmála, heldur könnun á þeirri þróun sem átt hefur sér stað í þessum efnum. Ég tel mikilvægt að allir aðilar fái sem gleggstar upplýsingar um það efni til að auðvelda málefnalegar umr. og ákvarðanir, ef menn telja að niðurstöður leiði til þess að taka þurfi ákvarðanir í því skyni að breyta þróun mála.