20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2332 í B-deild Alþingistíðinda. (1842)
238. mál, frestun á fundum Alþingis
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hér er greinilega um tvö mál að ræða. Annars vegar það að hæstv. forsrh. lýsir því yfir að hann muni beita sér fyrir því að við umr. um efnahagsmál á næstu vikum og mánuðum verði haft samráð við aðila vinnumarkaðarins og við fulltrúa stjórnarandstöðunnar.
Ég verð að segja að ef það samráð á að verða með þeim hætti sem stundum hefur verið hjá núv. hæstv. ríkisstj., þar sem stjórnarandstæðingar fá það hlutverk eitt að taka við plöggum og engar umr. marktækar fara fram á milli manna, hvað þá heldur að þær hafi áhrif á niðurstöður, þá er slíkt samráð gagnslaust bæði fyrir stjórnarandstöðuna og hlýtur einnig að vera það fyrir aðila vinnumarkaðarins. Slíkt samráð er í raun og veru nafnið tómt og ekkert annað en áróðurstilraun ríkisstj. til að styrkja sína eigin stöðu. Slíkt samráð er tilgangslaust og það getur ekki verið að menn hafi mikinn áhuga á slíku. A.m.k. á það við um mig.
Hins vegar tel ég þá hugmynd að skipa nefnd til að fara ofan í tekjuskiptingu þjóðfélagsins á liðnum árum og áratugum góða hugmynd. Ég er sannfærður um að sú nefnd og vinna á hennar vegum gæti orðið grundvöllur að tillögugerð um breytingar og lagfæringar á tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu. Ég vil í framhaldi af þessum umr. og upplýsingum spyrja í fyrsta lagi: Er gert ráð fyrir því að forsrh. skipi þá nefnd sem hér um ræðir? Í öðru lagi: Hvenær er gert ráð fyrir að hún verði skipuð? Verður það nú í jólaleyfi? Og loks vil ég spyrja: Treystir forsrh. sér til þess að gefa yfirlýsingu um að samráð við stjórnarandstöðu og aðila vinnumarkaðarins verði með skipulegri hætti en verið hefur að undanförnu?