20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (1843)
238. mál, frestun á fundum Alþingis
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ríkisstj. hefur ekki tekið afstöðu til þessarar hugmyndar. Ég hef lýst minni skoðun. Ég er því fylgjandi að slík athugun verði gerð og aðilum vinnumarkaðarins og stjórnarandstöðu boðin aðild að henni. Ég geri fastlega ráð fyrir að það verði tekið upp á ríkisstjórnarfundi mjög fljótlega.
Um samráð við stjórnarandstöðuna um stjórn efnahagsmála vil ég segja það að stjórnarflokkarnir munu sjálfir bera alla ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar verða í efnahagsmálum, enda geri ég ekki ráð fyrir að stjórnarandstaðan sé að bjóða fram samábyrgð á því. Og hv. þm. verður að meta það sjálfur hvort þær upplýsingar sem honum kunna að vera boðnar séu þess virði að taka við þeim eða ekki.