18.10.1984
Sameinað þing: 7. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (186)
12. mál, leit að brjóstakrabbameini
Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég vil þakka þeim sem hafa tekið til máls, bæði núv. og fyrrv. hæstv. heilbrmrh. og þm. Ég vil enn fremur þakka þeim sem hafa stutt málið og sýnt því skilning. Það var komið inn á ýmis mjög mikilvæg atriði í umr. og mig langar að byrja á því að taka undir eitt af því sem fram kom en það er að sárlega vantar samræmda og skipulega uppbyggingu heilbrigðismála. Þetta er engin nýlunda því að ég minnist þess að árið 1966 sat ég í húsi hér handan við Austurvöllinn, sem þá hét Sjálfstæðishúsið, á ráðstefnu þar sem einmitt var verið að ræða sama vandamál, sumsé að það vantaði sárlega samræmda og skipulega uppbyggingu heilbrigðismála hér á landi. Þróun þessara mála hefur verið allt of tilviljanakennd, og hún hefur ráðist um of af tímabundnum þrýstingi í ákveðnar áttir sem hefur e.t.v. verið á kostnað almennrar þróunar. Það hefur verið tilhneiging til þess að leggja ofuráherslu á að byggja upp klíníska hlið læknisfræðinnar, þ.e. beina þjónustu við sjúklinga, oft að talsverðu leyti á kostnað uppbyggingar undirstöðugreina læknisfræðinnar, eins og t.d vísindalegra rannsókna og stuðningsgreina. Ekki síst hefur það verið á kostnað forvarna, sem ættu að fyrirbyggja þessa gríðarlega fjárfreku og dýru viðgerðarþjónustu sem þarf þegar skaðinn er skeður. Við höfum hreinlega ekki efni á því lengur að moka fé stöðugt í þessa sömu átt því að þetta er botnlaus hít. Við verðum að hyggja meira að fyrirbyggjandi heilsuvernd. En ég skil það ósköp vel að það er erfitt að standa gegn knýjandi og brýnum þörfum og kröfum ýmissa sjúklingahópa eða hagsmunahópa. Tilhneigingin hefur samt verið sú að við höfum byggt of dýrt, það er mín skoðun. Ég er alveg viss um það og ég hef séð það meðal annarra þjóða, þar sem ég hef annaðhvort unnið eða dvalið um lengri eða skemmri tíma, að það er hægt að reka árangursríka læknisfræði og læknisþjónustu á ódýrari hátt.
Ég benti á það áðan að þetta verkefni, sem ég er að tala um hér og við Kvennalistakonur leggjum fram sem þáltill. kostar 7–8 millj. á ári eins og fram kemur af skýrslu, sem að vísu er takmörkuð, en mér skilst að von sé á betur sundurliðaðri skýrslu, sérstaklega hvað varðar kostnað. Þarna er um að ræða 7–8 millj. kr. á ári þar sem er innifalinn stofnkostnaður. Þetta er aðeins andvirði rekstrarkostnaðar við 5-10 sjúkrarúm á ári. Aftur á móti er hinn endi málsins, þ.e. K-byggingin, þar sem verður læknisfræðileg meðferð krabbameins sem þarfnast mun róttækari aðgerða. Mér er sagt að hún kunni að kosta um 200 millj. kr. þegar öll kurl verða komin til grafar. Og hana er fyrst og fremst verið að byggja yfir tæki sem kostar u.þ.b. 20–30 millj. kr. Nú er ég ekki alveg viss um að ég fari með hárréttar tölur, en ég hygg að þær séu af þessari stærðargráðu. Ég skil þá brýnu nauðsyn sem er á því að bæta krabbameinslækningar og byggja yfir þennan línuhraðal, sem við þyrftum að fá, en spurning mín er sú: Þurfum við að byggja svona dýrt til þess að náist árangursrík meðferð á krabbameinssjúklingum, ef það er takmarkið?
Hvað varðar þær rannsóknir, sem bæði ég og hæstv. heilbrmrh. vitnuðum til og þess að velja þetta forvarnarverkefni þá er það rétt að sumar þeirra eru umdeildar. Ég vil minnast á rannsókn, sem hæstv. heilbrmrh. vitnaði í frá New York í Bandaríkjunum. Hún byrjaði á 7. áratugnum og þátttaka í henni og allur undirbúningur hennar var annar og talsvert lakari en í öllum hinum nýrri rannsóknum. Þess vegna er hún kannske ekki endilega sú sem ætti helst að miða við. Enda jukust líflíkur þar ekki nema um það bil 38%. Í öllum hinum rannsóknunum, hvort sem þar hafa verið viðmiðunarhópar eða ekki, hefur yfirleitt sýnt sig að þar var betri árangur. Þó að ekki sé í öllum rannsóknunum notaður viðmiðunarhópur, en þá verður líka að taka tillit til þess, hæstv. heilbrmrh., að meðferðin sem þessir sjúklingar á fyrstu stigum sjúkdómsins fá er miklu vægari, hún er miklu mannúðlegri en sú meðferð sem nauðsynleg er á síðari stigum sjúkdómsins vegna þess að það hefur gífurleg sálræn áhrif á konur þegar gerð er svo lýtandi skurðaðgerð á þeim eins og oft þarf. Það er ekki bara óttinn við krabbameinið og óttinn við dauðann af völdum þess sem er vandamál þessara sjúklinga, heldur er þetta líka líkamlega lýtandi aðgerð sem getur haft djúp sálræn áhrif, valdið minnimáttarkennd, þunglyndi og kvíða. Og það ber að taka tillit til þess hver gæði þess lífs eru sem fólk lifir, ekki endilega bara lengd þess. Mér finnst það vera veigamikill þáttur. Þó benda allar niðurstöður á auknar lífslíkur eftir sjúkdómsgreiningu við hópskoðun.
Sá vinnuhópur, sem falið var að rannsaka þetta verkefni og vega og meta hvort þetta verkefni ætti heima hérlendis sem forgangsverkefni, er sammála um að svo sé. Þarna standa að málum sérfræðingar á sviði krabbameinslækninga eða sjúkdómsgreininga og hafa mikla persónulega reynslu á því sviði. Það ber því að taka fullt tillit til niðurstaðna nefndarinnar.
Ég held að ég verði að skora á hæstv. heilbrmrh. að leita allra leiða til þess að geta fjármagnað verkefnið því að ég er sannfærð um að þetta er brýnt réttindamál. Það var karlmaður, læknir, sem lét þessi orð falla nýlega og var þó engin Kvennalistakona nálægt. Hann sagði sem svo: „Ef það væru karlmenn sem hefðu svo banvænan sjúkdóm sem þennan og það væri vitað af rannsóknaraðferð sem mundi auka lífslíkur og vellíðan þeirra, þá væru þeir löngu, löngu búnir að koma þessari rannsókn á.“