20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2398 í B-deild Alþingistíðinda. (1878)
Þingfrestun
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Með því að þetta er síðasti fundur Alþingis fyrir frestun þess vegna jólanna, þá vil ég leyfa mér að flytja öllum hv. alþm., skrifstofustjóra og starfsliði þingsins mínar bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á því ári sem nú er senn lokið.
Ég vil flytja hv. þm. öllum óskir um gleðileg jól og gott og farsætt nýár, svo og skrifstofustjóra og öllu starfsliði þingsins.
Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.
Ég vona að við hittumst öll heil til starfa þegar Alþingi kemur saman á næsta ári.