28.01.1985
Sameinað þing: 39. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2401 í B-deild Alþingistíðinda. (1885)
Varamenn taka þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Svohljóðandi bréf hefur borist:
„Alþingi, 25. jan. 1985.
Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurl. v.. Þórður Skúlason sveitarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt. herra forseti.
Salome Þorkelsdóttir,
forseti Ed.“
Þórður Skúlason sveitarstjóri hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hann nú velkominn til starfa.
Þá hefur borist svohljóðandi bréf:
„Alþingi, 25. jan. 1985.
Halldór Blöndal, 2. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. e., Vigfús Jónsson bóndi, Laxamýri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Með þessu bréfi fylgir kjörbréf Vigfúsar Jónssonar. Með því að hann hefur ekki tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili þarf að rannsaka kjörbréf hans og er þess óskað að hv. kjörbréfanefnd taki kjörbréf þetta til athugunar, en á meðan verður fundinum frestað í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]