29.01.1985
Sameinað þing: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2404 í B-deild Alþingistíðinda. (1894)
196. mál, skattar verslunarinnar
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég hlýt að óska eftir því við hæstv. forseta, þar sem hæstv. fjmrh. er ekki tilbúinn með svörin, að fsp. verði frestað. Það er raunar nokkuð óvenjulegt að fsp. sé tekin á dagskrá án þess að svör liggi fyrir. En ég hlýt að fara fram á það við forsetann að þessi fsp. verði á dagskránni áfram þar sem hæstv. ráðh. hefur ekki enn þá komið með þau svör sem brúkleg eru í þessu efni.