29.01.1985
Sameinað þing: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2410 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)
Um þingsköp
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég gerði grein fyrir því rétt fyrir jólin að til þess að svara fyrri lið þeirrar fsp. sem hv. 4. þm. Suðurl. hefur borið fram á þskj. 203 þyrfti að fá upplýsingar frá öllum sláturleyfishöfum á Suðurlandi. Þá hafði ekkert svar borist við þeirri beiðni landbrn. Þegar að því kom að fsp. kæmi aftur á dagskrá reiknaði ég með að svör lægju fyrir, en því miður voru þau harla fá. Af þeim sökum er ekki fært að svara fyrri lið fsp. Ég held að jafnvel þó að ég hefði látið allt starfsfólk landbrn. telja kjötskrokka, eins og mér skildist á hv. þm. að það gerði, hefði það lítið stoðað þar sem töluverður hluti af þessu kjöti var þegar seldur þegar fsp. var borin fram. Þar er því lítils árangurs að vænta með því móti.
Um síðari liðinn er ég reiðubúinn að ræða og ef fyrirspyrjandi óskar þess mun forseti væntanlega taka hana á dagskrá og ég þá svara spurningu fyrirspyrjanda.