29.01.1985
Sameinað þing: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2416 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)

184. mál, fullvinnsla kjötafurða

Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):

Herra forseti. Ég hef á þskj. 203 leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. landbrh. um fullvinnslu kjötafurða.

Eins og hæstv. landbrh. er fullljóst hefur nú um nokkurn tíma verið um töluvert atvinnuleysi að ræða í kjördæmi hans á Suðurlandi. Þar hafa sveitarstjórnarmenn og aðrir þeir sem með atvinnumál hafa að gera lagt á sig mikla vinnu við leit að nýjum atvinnutækifærum til handa þeim 150–170 nýliðum sem koma á ári hverju á vinnumarkaðinn í Suðurlandskjördæmi og þeim sem nú þegar ganga atvinnulausir. Þetta starf hefur nú þegar skilað árangri og þó nokkur ný iðnaðarfyrirtæki verið sett á stofn og önnur í sjónmáli. En það dugar þó hvergi til.

Á Selfossi er ástandið hvað verst. Óvíða á landinu er jafnviðvarandi atvinnuleysi og þar. Skráðir atvinnuleysisdagar eru á árinu 1984: í janúar 1693, febrúar 1551, mars 1289, apríl 908, maí 1231, júní 1034, júlí 1127, ágúst 907, svo koma tveir góðir mánuðir, september — október, þar eru aðeins 340 atvinnuleysisdagar í september og 275 í október, en í nóvember hækkar það aftur í 681. Um desember voru ekki komnar tölur, en þar voru yfir 1200 atvinnuleysisdagar 1983.

Aðeins á haustmánuðum, í september og október, eru atvinnuleysisdagar færri en aðra mánuði ársins. Þá starfar sláturhús Sláturfélags Suðurlands af fullum krafti og veitir fjölda Selfyssinga og öðrum þeim, sem í nágrenni Selfoss búa, atvinnu. En þegar slátrun og fyrsta frágangi kjöts er lokið er það sett á bíla og keyrt til Reykjavíkur. Og þarna, hæstv. ráðh., liggur ástæðan fyrir því að ég ber upp þessar spurningar. Meðan leitað er nýrra atvinnutækifæra innlendis og stórum fjármunum eytt í erlend ráðgjafarfyrirtæki í von um að hafa upp úr krafsinu atvinnu til handa þeim sem nú ganga atvinnulausir, þá horfum við á atvinnuna keyrða í burtu úr kjördæminu í formi kjötskrokka. En þó tekur út yfir allt þegar þær fréttir berast að nú ætli Sláturfélag Suðurlands, sem er samtök bænda, að'/s frá Suðurlandi. að hefja byggingu nýrrar kjötvinnslustöðvar hér í Reykjavík. Og það er sko engin smábygging. slagar hátt í Seðlabankahúsið, höll sem er 97886 rúmmetrar að stærð og á að hýsa kjötvinnslu, geymslu og skrifstofu Sláturfélagsins.

Bygging hallarinnar hlýtur að kosta á núgildandi verðlagi einhvers staðar á bilinu 100–150 millj. kr. Það þarf engum að segja, og allra síst hæstv. ráðh.. hvaðan þetta fjármagn kemur. Ég trúi því tæplega að bændur á Suðurlandi séu hlynntir því að þeir peningar, sem þeir fá fyrir afurðir sínar seint og um síðir, séu notaðir til byggingar slíkrar hallar sem hér um ræðir. Ég trúi því að þeir vildu heldur leggja lið sitt atvinnumálum á Suðurlandi með því að færa fullvinnslu afurðanna heim á framleiðslusvæðið.

Herra forseti. Hæstv. landbrh. er áreiðanlega fullljóst að við búum ekki það vel á Suðurlandi að við getum keyrt atvinnuna í burtu. Það væri því fróðlegt að vita hvað hann hyggst gera í þessum málum. bæði fyrir nefnt svæði og önnur landbúnaðarsvæði á landinu, og þó ég fái ekki hér svör við fyrstu spurningunni. sem er hversu mörg tonn af óunnu kjöti eru flutt frá Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum til vinnslu í Reykjavík, þá vitum við bæði að þar er um gífurlegt magn að ræða og ef miðað er við tímann sem það hefur tekið að safna saman þessum umbeðnu tölum sjáum við hvað þær eru háar. Þá vil ég gjarnan fá svör við annarri spurningunni sem er ekki síður mikilvæg: Hefur rn. einhverjar áætlanir um að stuðla að frekari fullvinnslu þessara afurða í áðurnefndum landbúnaðarhéruðum eða færa úrvinnslu landbúnaðarafurða í auknum mæli út til framleiðslusvæðanna?