29.01.1985
Sameinað þing: 41. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2425 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)

62. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég hlustaði af athygli á framsögu hv. flm. með þessari till. og vil nota tækifærið til að lýsa því yfir að ég er algerlega sammála því sem fram kemur á þskj. 62 og eins því sem fram kom hjá hv. flm. er hún talaði hér fyrir þessu máli. Hér er um réttlætismál að ræða eins og svo mörg önnur á þessu sviði, sem Alþingi hefur því miður ekki borið gæfu til á undanförnum árum að leiða fram á réttan hátt, þannig að heimilisstörf, ekki síst störf húsmæðra hér á landi, væru rétt metin á flestum sviðum eins og efni hefðu átt að standa til.

Það ætti í raun og veru ekki að þurfa að minna á ýmislegt í þessu máli. Ég verð hins vegar að játa að ég hef orðið fyrir vissum vonbrigðum í umræðum um þessi mál á undanförnum árum. Ég minnist þess, þegar ég var í þeim sporum árið 1980 að reyna að vekja athygli á óréttlæti gagnvart húsmæðrum hér á landi í sambandi við fæðingarorlof o. fl., hvað óvænt komu fram þær skoðanir hér á þingi að þeirra staða væri það góð og örugg í faðmi heimilisins að raunverulega þyrfti ekki að taka tillit til þeirra í almennri löggjöf. Svo væri sérstaða þeirra á mörgum sviðum. Þetta kom úr ólíklegustu átt og ég varð svolítið undrandi á þeim umræðum. En sem betur fer hefur orðið breyting á í okkar þjóðfélagi hvað þetta snertir, hvort sem hægt er að þakka það jafnréttisbaráttu eða því að framganga kvenna hefur aukist almennt í umræðum hér á landi. Ég skal ekki dæma um það. En hér er um að ræða mál, sem þarf að vinna skipulega að svo að réttlætið nái fram að ganga og þetta er einn þáttur þess.

Ég vil lýsa því yfir um leið og ég vísa til þess sem ég hef áður flutt hér á Alþingi í sambandi við fjölskyldumál og fjölskylduvernd að ég er fyllilega sammála því og hef áhuga fyrir því að mat á heimilisstörfum og ekki síst staða heimavinnandi húsmæðra verði tryggð í löggjöf. Það komi að því að heimilisstörfin séu metin ekki aðeins í lægsta flokki heldur í hæsta flokki þegar fjallað er um gildi starfa almennt í þjóðfélaginu og ekki hvað síst í sambandi við uppeldismál okkar þjóðar. Þess vegna tek ég heils hugar undir þessa þáltill. og málflutning hv. flm.