29.01.1985
Sameinað þing: 41. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (1956)
Umræður utan dagskrár
Árni Johnsen:
Herra forseti. Ég vil taka undir orð síðasta hv. ræðumanns um mikilvægi kvenna í okkar þjóðfélagi. Það undirstrikast af því að ef engar konur væru í þessu landi þá væri hér engin þjóð.
Það er rætt um ástand á Suðurnesjum og eru æðimörg atriði sem ástæða væri til að fjalla um því að þar búa menn við erfiðar og sérstæðar aðstæður. Hv. þm. Karl Steinar Guðnason fjallaði svolítið um gámaútflutning. Vissulega eru skiptar skoðanir á því máli. Þar er um að ræða framþróun sem ekki verður stöðvuð, en þarf hins vegar að taka tillit til á margan hátt, því þarna skarast hagsmunir annars vegar útgerðar og sjómanna og hins vegar landverkafólks. En hv. þm. tók einnig undir það að þarna ætti ekki að setja hömlur nema þá að takmörkuðu leyti. Ég ætla ekki að fara nánar út í það, en það má benda á að hlutfall gámaútflutnings á undanförnum árum hefur hækkað 100% á milli ára s.l. þrjú ár. Sú mikla aukning kemur fyrst og fremst til vegna þess að staða útgerðarinnar kallar á það að menn leiti leiða til að fá meira fyrir aflann. Fyrstu 6 mánuði ársins 1983 voru flutt 3700 tonn í gámum miðað við 7200 s.l. ár á sama tíma. Aukningin hefur því verið 100% og mun meiri en í öðrum siglingum með fisk.
Það er hagkvæmt að sigla og þess vegna hefur verið siglt með fisk í gámum og á annan hátt. Verðið fyrir fiskinn hefur allt að þrefaldað tekjur sjómanna og útgerðar. Þess vegna er slík þróun ekki óeðlileg. Hitt er annað, að ef svo fer fram sem horfir fara hagsmunir sjómanna og útgerðar að rekast mjög harkalega á við hagsmuni landverkafólks víða um land. Mest hefur verið flutt út á þennan hátt frá Suðurnesjum og nálægari sjávarplássum. Þetta mál er því einn þáttur í þeim margþætta vanda sem menn eiga við að stríða á Suðurnesjum og er mun margþættari en í sömu atvinnugrein annars staðar á landinu.
Það má benda á að það hefur ekki dregið úr áhuga fyrir siglingum að hægt er að kaupa olíu fyrir mun lægra verð í nálægum löndum en hér er unnt að gera. Það hefur á þann hátt hvatt til siglinga með fisk.
Segja má að á Suðurnesjum — og sérstaklega í Keflavík og nágrenni þar sem vandinn er mestur — sé togað í sjómenn úr mun fleiri áttum en víðast hvar annars staðar á landinu, jafnvel stórum sjávarplássum. Á því hefur orðið mikil breyting á 10–15 árum. Fyrir u.þ.b. 10 árum kom ég oft á bryggjurnar í þessum sjávarplássum á Suðurnesjum og reyndar oft síðar. Líf þessara plássa var við höfnina. Menn fylgdust með því hvernig aflaðist, menn spurðu um gengi þessa báts og þessa skipstjóra og þessarar skipshafnar. En nú er þetta breytt. Nú sjást menn ekki á bryggjunum í þessum plássum og lífæðin hefur færst til. Það er margt sem spilar þar inn í, ég nefndi að togað hefði verið í sjómenn úr ýmsum áttum, kannske sérstaklega á Keflavíkursvæðinu ef maður tekur Suðurnesin í heild. Það eru fleiri atvinnutækifæri í boði í landi í dag en þau voru fyrir nokkrum árum og einnig hefur tekjuskipting gjörbreyst.
Fyrir 10–15 árum fóru iðnaðarmenn á vertíð og margfölduðu laun sín. Nú fara iðnaðarmenn ekki til sjós til þess að margfalda laun sín. Fyrir 10 árum var ekki óalgengt að bátar væru með 800–1000 tonn á vertíð. Nú eru þessir sömu bátar kannske að fá 300–400 tonn. (Gripið fram í: Þetta er í Eyjum.) Því miður á þetta einnig við um Vestmannaeyjar. En þar hefur þó verið meiri hryggur í þessu en víða annars staðar. Þetta er liður í þeim breytingum í þjóðfélaginu sem hafa orðið á kostnað sjávarútvegsins fyrst og fremst. Hann hefur setið eftir á merinni og situr ekki við það borð sem hann á að sitja. Það er vandi suðurnesja í dag í þessum efnum.
Segja má að það hafi einnig orðið mikil breyting á milli plássa. Sandgerði er í dag mun hryggmeira verstöðvarpláss en Keflavík. Þessu var öfugt farið fyrir einum áratug. Það hefur verið mikil lausung og los á þessari atvinnugrein víða á Suðurnesjum. Grindavík sker sig þar úr, en þetta er meira í þessum plássum á Suðurnesjum en víðast annars staðar á landinu og það er hægt að standa við það fullum fetum af reynslu. Ástæðan er sú að menn hafa ekki fengið þann arð sem þeir hafa viljað af sinni atvinnuuppbyggingu. Þess vegna hefur orðið talsvert mikil breyting. Það má nefna að á stuttum tíma hafa verið seldir togarar frá Suðurnesjum, fyrir utan það að þaðan var seldur u.þ.b. 9000 tonna aflakvóti. Það munar um minna þegar t.d. ársaflinn 1984 í Keflavík er líklega um 24000 tonn. 9000 tonn hafa verið seld í kvóta. Alli spilar þetta inn í þegar rætt er um stöðuna í heild.
Suðurnesjamenn voru hvað síðastir að koma sér inn í togaraútgerðina. Nú hafa togarar verið seldir. Það eru líklega ekki nema fimm togarar á Suðurnesjum í dag. Það er nýbúið að selja togara til Hornafjarðar, er verið að selja annan, Sveinborgu til Djúpavogs, til sitt hvors kaupfélagsins á því svæði. Í Sandgerði eru, ef ég man rétt, togararnir Ólafur Jónsson, Sveinn Jónsson og Haukur, í Keflavík eru Aðalvík og Bergvík og í Njarðvík er Dagstjarnan. Þá er upp talið. Þetta eru margir þættir sem spila inn í þessa stöðu og veruleg ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af á Suðurnesjum.
Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um kvótann til þess að lengja ekki tímann. Við höfum aflað núna á s.l. ári fyrir u.þ.b. 500 millj. dollara í sjávarútvegi. Árin 1983 og 1982 var upphæðin svipuð, um 500 millj. dollara. Hins vegar var aflað fyrir um 700 millj. dollara í sjávarútvegi 1980 og 1981. Tekjurýrnunin er þannig 200 millj. dollara, eða 8 milljarðar kr. á hvert ár, og það munar um minna.
Það er þetta sem veldur því að við búum við geipilegan vanda og veldur því að menn verða að horfast í augu við það að allir eigi að taka á sig sinn hluta vandans, enginn komist undan. Þegar maður lítur á svona breytingar vakna spurningar. Úr því að ástæða er til að setja kvóta á afla ætti ekki að setja t.d. kvóta á heildsölu inn í landið? Markaðurinn breytist ekki. Framleiðslan kemur til vegna tekna í sjávarútvegi, og ef við eigum ekki meiri peninga eigum við þá að hleypa endalaust inn innflutningi? Þetta eru spurningar sem við eigum að horfast í augu við og hljóta að koma upp á borðið við slíkar aðstæður. En þarna er hægara sagt en gert vegna þess að grundvallarþátturinn er sá að sjávarútvegurinn hefur liðið fyrir hina öru uppbyggingu, hann hefur setið eftir en menntakerfið, heilsugæslukerfið og aðrir fjölmargir þættir okkar þjóðarbús og þjóðfélags hafa tekið of stóran hlut. Menn hafa hikað við að snúa dæminu við. Menn hafa hikað við að skerða marga þætti í okkar velferðarsamfélagi sem ástæða er til að taka á og ná áttum til lands.
Þetta er langt og mikið mál sem þyrfti lengri tíma til umfjöllunar. En með tilliti til þess að ætlast er til að umr. sé lokið á stuttum tíma ætla ég ekki að fjalla um þetta nánar núna. Ég held að ég hafi bent á ýmis atriði sem skýra þessa stöðu. Hún er ekki óskiljanleg, en menn verða að horfast í augu við það að þeir verða að ná landi ef þeir hafa tapað áttum.