29.01.1985
Sameinað þing: 41. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2464 í B-deild Alþingistíðinda. (1958)

Umræður utan dagskrár

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Þegar ég óskaði eftir því að taka til máls hér utan dagskrár, þá var það gert til þess að vekja athygli á vanda sjávarútvegs á Suðurnesjum sérstaklega og því atvinnuleysi sem er hjá fiskvinnslufólki, ekki aðeins á Suðurnesjum heldur víða um land. Þetta er mjög mikið vandamál og eins og formaður Verkamannasambandsins komst að orði áðan verða menn að átta sig á því að hér er um lifandi fólk að ræða sem þarf úrbót á sínum málum.

Það hefur komið fram hér að menn gera sér grein fyrir því að sjávarútvegurinn er mjög illa staddur. Ég hygg að það sé samdóma álit manna að verði hann rekinn af þrótti og reisn, honum sköpuð skilyrði til þess að starfa á eðlilegum grundvelli, muni atvinnumálin leysast. Ég beindi hér nokkrum spurningum til hæstv. sjútvrh. og taldi það ekki spurningar sem þyrfti mikils undirbúnings við því að sjútvrh. starfar að þessum málum dag hvern. Það var líka á honum að heyra í hans svörum að hann réði fyllilega við að svara því.

Hitt er annað að ég tel ástæðu til að árétta það sérstaklega hvað fram undan er í sjómannadeilunni, en framvindan þar getur orðið til þess að þar verði stöðvun sem þá veldur því aftur að þúsundir fiskvinnslufólks verða atvinnulausar. Ég vona að stjórnvöld geri ráðstafanir sem auðveldi lausn þessarar deilu.

Það er alveg ljóst að gera þarf verulegar ráðstafanir í sjávarútvegi til að þessi útvegur geti gengið og ég vænti þess að svo verði gert sem allra fyrst. Ég tala nú ekki um hvað varðar málefni Suðurnesja, sem eru þannig stödd að hvergi mun ástandið vera verra í sjávarútvegi.

Ég ætla ekki að tíunda ýmislegt af því, sem hér hefur komið fram en ástæða væri til að ræða um, vegna þess að tími er stuttur. En ég verð að bera sakir af starfsmanni Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Hv. 7. landsk. þm. hefur nú vitnað í ummæli sem höfð voru eftir honum í blaði fyrir nokkru. Hv. þm. hefur áður vitnað í þessi ummæli, sem leiðrétting hefur komið á í blaði einnig en það hefur ekki komið fram í þessum tilvitnunum. Hitt er annað mál að hugsunin á bak við það, sem þarna mun hafa átt að standa, er það, sem ekki allir skilja, að þegar atvinnuleysi er og báðar fyrirvinnur heimilis eru atvinnulausar þá er ástandið þar verra en ef aðeins annað er atvinnulaust. Ég tel að þetta sé mjög augljóst mál.

Auðvitað er klaufalegt, ef rétt er eftir haft, sem ekki var, að segja að það bjargi málunum að svo og svo margir hafi fyrirvinnu. En hann hefur vafalaust rætt þetta við blaðamennina á þeim nótum að erfiðleikarnir hjá þeim fjölskyldum, þar sem báðir aðilar væru atvinnulausir, væru miklu meiri en hjá hinum sem hefðu þó einn aðila til að vinna fyrir heimilinu. Mér finnst þetta mjög auðskiljanlegt og fólkið sem horfir upp á eða þekkir hvernig atvinnuleysið leikur margt fólk, skilur þetta. Fólkið sjálft áttar sig mjög vel á þessu. Það er ástæðulaust að tönnlast á ummælum og gera þau tortryggileg ef menn átta sig ekki á því hvað býr að baki þeim. Reyndar sagði viðkomandi maður að ekki hefði verið rétt eftir sér haft. En ég hygg að þetta hafi verið sú hugsun sem hann vildi koma til skila í blaðinu. En það eru reyndar allmargir í sjávarplássunum sem þurfa að una við það og hafa þurft að gera það yfir jólamánuðina að báðar fyrirvinnur væru atvinnulausar og heimilið hefði ekkert nema atvinnuleysisbætur svo smánarlega lágar sem þær eru.