30.01.1985
Efri deild: 39. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2489 í B-deild Alþingistíðinda. (1972)
247. mál, flutningsjöfnunarsjóður olíu og bensíns
Þórður Skúlason:
Virðulegi forseti. Ég á þess að vísu ekki kost að fjalla efnislega um þetta frv. nema að litlu leyti, en þar sem ég reikna ekki með að eiga þess kost síðar að taka þátt í umfjöllun um þetta mál langar mig til að segja örfá orð. Hér er raunar um gríðarlega þýðingarmikið mál að ræða, ekki síst fyrir landsbyggðina og útgerðina í landinu sem er dreifð vítt um landið, og þess vegna full ástæða til að gefa þessu nokkurn gaum.
Það sem ég rek fyrst augun í í sambandi við þetta frv. eru þau ákvæði sem er verið að breyta frá þeim reglum sem gilt hafa um olíu- og bensínverð í landinu, en mér skilst að ef þetta frv. verður að lögum falli niður það ákvæði, sem gilt hefur, að sama söluverð skuli gilda á olíu og bensíni um land allt. Þetta er út af fyrir sig mikið umhugsunarefni. Hins vegar sýnist mér að það sé gert ráð fyrir að sami seljandi hafi sama verð á sinni útsöluvöru, á olíu og bensíni, hvar sem hann selur hana, hvar sem er á landinu. Það sem kemur upp í hugann í sambandi við þetta er hvort þessi mál gætu þróast þannig að einn innflytjandi seldi bara bensín og olíu á tilteknu svæði, þar sem ódýrast er að dreifa þeirri vöru, og gæti þar af leiðandi haft lægra verð en hin olíufélögin hefðu sem mundu versla með þessa vöru út um allt land. Þetta kemur í hugann.
Í 1. gr. er líka gert ráð fyrir að Verðlagsráð fjalli um flutningsjöfnunargjald í stað þess að viðskrh. hefur haft þetta í hendi sér fram að þessu, eftir því sem mér skilst. — Þetta er rangt hjá mér. En ég held að það hafi í sjálfu sér ekki skipt miklu máli því að mér sýnist að olíufélögin fái sínar hækkanir hver sem fjallar um það. Það hefur orðið reyndin.
Hins vegar er ástæða til þess, þegar þetta frv. liggur hér fyrir, að fara örfáum orðum um flutning á olíu og bensíni um landið og það kerfi sem við búum við í þeim efnum. Við vitum hvernig það er. Þetta er þrefalt kerfi og leiðir örugglega til þrefalds verðs í sambandi við flutningsgjaldið. Við vitum hvernig það er með gasolíuskipin sem koma með olíuna út á land. Það kemur eitt skip og setur slatta af olíu á tank. Það getur komið annað skip daginn eftir og sett slatta af olíu á tank hjá öðru félagi. Það er tæpast hægt að ímynda sér að slíkt leiði til sparnaðar. Eins vita allir hvernig er með olíu- og bensínbílana sem elta hver annan sinn frá hverju olíufélaginu um þjóðvegi landsins. Það er þrefalda dreifingarkerfið sem þessu veldur. Það er öruggt mál að olían í þessu landi er töluvert mikið dýrari vegna þess þrefalda kerfis sem við búum við. En það er ekki bara það að flutningsgjaldið sé dýrara. Auðvitað er reksturinn líka miklu dýrari á því kerfi sem við búum við en ef hér væri aðeins um einn aðila að ræða sem dreifði þessum mikilsverðu vörum í landið. Og þetta leiðir líka til gífurlegrar offjárfestingar í bensínstöðvum vítt og breitt um landið, eins og allir þekkja og við blasir hvar sem maður fer um þjóðvegina, og reyndar ekki hvað síst á höfuðborgarsvæðinu.
Mig langar til að nota þetta tækifæri til að fjalla aðeins um fyrirhugaðar bensínhækkanir sem nú munu verða á döfinni. Ég þóttist lesa í blaði áðan að nú stæði fyrir dyrum hækkun á bensíngjaldi vegna hækkunar á byggingarvísitölu um 70 aura. Svo skilst mér raunar að það liggi fyrir, eins og raunar kom fram hjá viðskrh. áðan, beiðni um stórfellda hækkun á gasolíu frá olíufélögunum. Mig langar til að spyrja að því hvort meiningin sé að hleypa þessum olíuverðshækkunum í gegn. Nú heyrast fregnir af því erlendis frá að olía sé að lækka í verði, en alltaf er hún að hækka í verði hér á landi. Líklega er olíuverð hvergi hærra í heiminum en einmitt hér. Hvað á að gera í þessum efnum? Er það virkilega rétt, sem kom fram hjá sjútvrh. í sjónvarpi í gær, að ríkisstj. ráði engu um olíuverð í landinu? Er það virkilega rétt að hún fái engu um það ráðið, jafnþýðingarmikinn málaflokk og hér er um að ræða? Kannske skiptir þó ekki máli hvort það er ríkisstj. eða Verðlagsráð sem fjallar um olíuverðshækkanir. Þó að ríkisstj. gæti haft þarna einhver áhrif á eru olíufélögin greinilega meðal óskabarna hennar og virðast fá sínu framgengt í þessum efnum.
Það er eitt atriði enn sem mig langar til að nefna í sambandi við olíufélögin og það tengist frétt, sem ég las í blöðum nýlega, um að forsrh. hafi komið með þá hugmynd sem lausn á vanda útgerðarinnar að fella niður landsútsvar af olíufélögunum. Landsútsvarið er eina gjaldið sem olíufélögin greiða til sveitarfélaganna í landinu. Olíufélögin eru ein allra fyrirtækja í landinu undanþegin aðstöðugjaldi. Mér finnst það heldur langsótt leið, ef þetta er rétt skilið, að bjarga útgerðinni með því að fara þá leið að fella niður af olíufélögunum landsútsvarið. En það væri fróðlegt að heyra hvað viðskrh. hefði um þessar beiðnir olíufélaganna að segja, hvort það er virkilega meiningin að olíufélögin fái enn og aftur að hækka olíuverðið.