30.01.1985
Neðri deild: 37. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2495 í B-deild Alþingistíðinda. (1979)

Fundarsókn þingmanna

Forseti (Karvel Pálmason):

Þess skal getið út af ummælum hv. 5. þm. Vestf. að hans mótmæli verða að sjálfsögðu skráð í þingtíðindi og þar vel geymd. Ég mun koma á framfæri við aðalforseta þessu sem hv. þm. var að gagnrýna. Um það hversu langur listi þarf að vera þannig að forsetar geri athugasemdir skal ég ekkert um segja. Ég er nýgræðingur í forsetastóli og ber minni ábyrgð á gjörðum sem hér hafa átt sér stað, allt til þessa a.m.k., en ýmsir aðrir. En öllu þessu verður komið til skila.

Hv. þm. sagði í lokin nokkur orð varðandi kennara. Forseti hefur verið kennari líka og hefur kennt þó að vantað hafi 25% af bekk, þannig að ég held að það sé eðlilegt, a.m.k. enn sem komið er, að halda hér áfram störfum.