30.01.1985
Neðri deild: 37. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2508 í B-deild Alþingistíðinda. (1992)
Fundarsókn þingmanna
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Í upphafi þessa fundar kvaddi sér hljóðs um þingsköp hv. 5. þm. Vestf. og vakti athygli á því að skv. fjarveruskrá í dag eru fjarverandi úr þinginu 15 þingmenn eða fjórðungur þingheims, auk þess eru hér inni nokkrir varamenn. Og ég verð að segja að miðað við allar aðstæður er það mikið álitamál hvort þingið er starfhæft þegar svona er að hlutunum staðið, þegar þess er auk þess gætt að formaður og varaformaður þingflokks Sjálfstfl. eru utan þings, og formaður og varaformaður þingflokks Framsfl. eru utan þings og hæstv. forseti Sþ. er utan þings. Ég tel að fjarvistir af þessu tagi séu í rauninni með öllu óeðlilegar og það þurfi að skipuleggja þessa hluti miklu betur en gert hefur verið. Ég fer fram á það við starfandi hæstv. forseta Nd. að hann beiti sér fyrir því að kallaður verði saman fundur forseta þingsins til að svara þeirri spurningu: Er þetta við hæfi? Er Alþingi starfhæft með fjarvistum af þessum toga?
Vænti ég þess að hæstv. forseti Nd. geti greint fá niðurstöðum forsetafundar um þetta efni áður en þingfundur hefst hér á ný á morgun. (Gripið fram í: Hvað um formann þingflokks Alþb.?) Herra forseti. Vegna fsp. um formann þingflokks Alþb. þá er hann fjarverandi en varamaður er inni fyrir hann. Sá er munurinn. Ég gegni störfum formanns þingflokks Alþb. sem varaformaður þess þingflokks.