30.01.1985
Neðri deild: 37. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2511 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)

Fundarsókn þingmanna

Forseti (Karvel Pálmason):

Ég ítreka það sem ég sagði áðan að ég mun beita mér fyrir því að slíkur fundur verði haldinn. Það skiptir í mínum huga ekki meginmáli hvort hann getur orðið á morgun eða þegar aðalforsetar eru mættir til leiks. En eigi að síður skal um þetta rætt við þá og þá tekst vonandi að fá fram umr. sem leiða til betri niðurstöðu, skýrari marka um þetta mál en nú virðist vera.