10.10.1984
Sameinað þing: 1. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

Forseti Íslands setur þingið

Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):

Hinn 7. september s.l. var gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh. að Alþingi skuli koma saman til fundar miðvikudaginn 10. okt. 1984.

Um leið og ég birti þetta er öllum, er setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gert í Reykjavík, 7. september 1984.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.

Samkvæmt bréfi því sem ég nú hef lesið lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett.

Ég á þá ósk þjóðinni og þingmönnum til handa við setningu Alþingis á þessum degi að þér berið gæfu til að ná samstöðu um úrræði sem endast megi til að sigrast á þeim örðugleikum sem einmitt nú er við að etja. Ég óska yður góðs farnaðar og læt þá von í ljós að störf þessa þings í þágu þjóðar vorrar megi verða gifturík.

Ég bið alþingismenn að rísa úr sætum og minnast fósturjarðarinnar.

[Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Þingmenn tóku undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram. Bið ég aldursforseta, Stefán Valgeirsson, 3. þm. Norðurl. e., að ganga til forsetastóls.

Aldursforseti tók nú við fundarstjórn og kvaddi sér til aðstoðar þá Árna Johnsen, 3. þm. Suðurl., og Þórarin Sigurjónsson, 2. þm. Suðurl.