31.01.1985
Sameinað þing: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2532 í B-deild Alþingistíðinda. (2014)

Umræður utan dagskrár

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 4. landsk. þm. Guðmundi Einarssyni fyrir að hefja þessa umr. og taka undir hvert einasta orð hans hér. Og ég lýsi vonbrigðum mínum með svör hæstv. ráðh. og stóryrði hans sem e.t.v. hafa átt að draga athyglina frá vondum málstað. Ég hlýt að lýsa furðu og skelfingu minni og okkar allra í þeim samtökum, sem ég er fulltrúi fyrir, á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru í þessu máli og á þeirri ótrúlegu skammsýni og ofríki sem birtast í þessari ákvörðun. Hún er í meira lagi vafasöm frá lagalegu sjónarmiði og forkastanleg með tilliti til náttúruverndar á þessu svæði sem er einstætt ekki aðeins á Íslandi og ekki aðeins í Evrópu heldur í öllum heiminum.

Hver erum við að ætla okkur þau eftirmæli í sögunni að vegna skammtíma gróðasjónarmiða höfum við leyft jarðrask á einhverjum stórkostlegasta bletti þessa lands án þess að vita með sæmilegri vissu um langtímaáhrif þess arna? Ætlar okkur Íslendingum aldrei að skiljast fyrir hverju okkur er trúað? Hvers vegna liggur hæstv. iðnrh. og kísilgúrforstjórum svo á í þessu máli að sjónarmið meiri hluta landeigenda, líffræðinga og náttúruverndarmanna eru lítilsvirt? Núgildandi leyfi rennur ekki út fyrr en eftir eitt og hálft ár. Hvers vegna liggur þessi ósköp á?

Náttúruverndarráð er tilbúið að fallast á leyfi til skemmri tíma og bundið við afmörkuð svæði að því tilskildu vitanlega að fjármagn fáist til nauðsynlegra rannsókna. Hvers vegna nægir það ekki, hæstv. iðnrh.? Hverra hagsmuna er verið að gæta? Vissulega eru deildar meiningar um það hversu langt sé óhætt að ganga en allt bendir til þess að ef haldið yrði áfram efnistöku í sama mæli og hingað til væri búið að klára allt svæðið í Ytri-Flóa eftir 15 ár héðan í frá. Leyfi hæstv. iðnrh. gildir frá 13. ágúst 1986 og er til 15 ára. Skv. framansögðu væru þá enn eftir tvö ár af leyfinu þegar búið væri að skafa upp allan botn Ytri-Flóa.

Fyrir nokkrum árum ræddi ég við einn af starfsmönnum kísilgúrverksmiðjunnar og spurði hann m.a. hvort menn væru ekki farnir að hafa áhyggjur af framtíðinni þar sem fyrirsjáanlegt væri að þessi verksmiðja gæti aldrei gengið til eilífðar, enda þá orðið ljóst að starfstími hennar yrði styttri en menn hefðu búist við í upphafi. „Ég þori nú ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda,“ svaraði hann. Það verður nú brýnna með hverju árinu sem líður að hugsa þá hugsun til enda. Við þurfum að hugsa þá hugsun til enda hvernig Mývatns- og Laxársvæðið liti út svipt sínu einstæða svipmóti fuglalífs og vatnagróðurs.

Ég verð að játa að mér finnst nánast ógeðfelli að tala um peninga í sambandi við þetta ómetanlega svæði. En hjá því verður aldrei komist. Og vissulega má meta náttúru Íslands til fjár, til beinharðra peninga. Ferðamenn eru t.d. ekki að leita að verksmiðjum hér á Íslandi. Þeir leita ekki að mannanna verkum eins og algengast er í útlöndum. Við förum til annarra landa að skoða merkilegar byggingar og sögulegar minjar. Þeirra er ekki leitað á Íslandi. Það er einstæð náttúra Íslands sem er svo eftirsóknarverð, náttúra lands okkar og hreina loftið sem okkur finnst sjálfsagt en útlendingar geta aldrei vegsamað nóg. Hve margir ferðamenn skyldu nú koma til Íslands hvaðanæva úr heiminum til að skoða kísilgúrverksmiðju við Mývatn? Vill ekki hæstv. iðnrh. segja þingheimi álit sitt á því?

Rökin gegn ákvörðun hæstv. iðnrh. eru mörg og þung. Skv. lögum nr. 36/1974, um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, er hvers konar mann virkjagerð og jarðrask óheimilt á svæðinu nema leyfi Náttúruverndarráðs komi til. Þetta stendur skýrt og skorinort í lögum og dugir ekki að skjóta sér á bak við lög frá 1966 sem, auk þess að vera eldri, ganga skemmra en lögin frá 1974.

Það er ekki hægt að ásaka Náttúruverndarráð um að hafa staðið lítt að rannsóknum á svæðinu og af þeim sökum sé það réttminna til að krefjast tíma til frekari rannsókna. Þar er fyrst og fremst við fjárveitingavaldið að sakast, eins og hér hefur komið fram. Það hefur ekki veitt umbeðið fjármagn til rannsókna sem margsinnis hefur verið leitað eftir. Hinn sísoltni ríkiskassi hefur hirt leigugjaldið sem kísilgúrverksmiðjan greiðir fyrir vinnsluna í stað þess að láta það renna beint til rannsókna á svæðinu eins og rétt hefði verið. Á þann hátt hefur verið staðið gegn nauðsynlegum rannsóknum. Út af fyrir sig er þess vegna þakkarvert að á þessu á að verða breyting. Og ég vil lýsa því yfir að ég treysti fyllilega, rétt eins og hæstv. iðnrh., Pétri Jónassyni til að veita forstöðu nefndinni. sem hér hefur verið til umræðu, þótt deildar meiningar séu um hana að öðru leyti.

Þrátt fyrir þetta fjársvelti hafa verið unnar umtalsverðar grunnrannsóknir á svæðinu, nánast fyrir þá heppilegu tilviljun að starfsmenn Líffræðistofnunar Háskólans hafa haft áhuga á þessu svæði en ekki frekar einhverju öðru merkilegu svæði á landi okkar. Kannske er það ofmælt að um tilviljun sé að ræða því að áhugi þeirra er auðvitað aðeins enn ein sönnun á mikilvægi svæðisins frá sjónarmiði líffræði og náttúruverndar.

Meiri hluti landeigenda í Mývatnssveit og við Laxá er sammála áliti Náttúruverndarráðs og tillögum þess. Þeir hafa látið sinn vilja í ljós, sbr. bréf frá stjórn Landeigendafélags Laxár og Mývatns frá 16. jan. s.l. og undirskriftalistann frá 15. jan. s.l. , sem hæstv. iðnrh. vitnaði til hér áðan. Þeim undirskriftum var safnað á einu kvöldi þar fyrir norðan og væri hann örugglega lengri hefði meira ráðrúm verið til.

Ég sé ekki ástæðu til að lesa þá yfirlýsingu yfir aftur. Það gerði hæstv. iðnrh. hér áðan. Ég vil hins vegar vitna til bréfs frá stjórn Landeigendafélags Laxár og Mývatns sem ég nefndi hér áðan og er frá 16. jan. s.l. Þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Stjórn félagsins lýsir fullu samþykki við umsögn Náttúruverndarráðs, dags. 18. des. s.l. , og beinir þeirri eindregnu ósk til iðnrh. að hann veiti leyfið á þann veg sem till. Náttúruverndarráðs gerði ráð fyrir. Stjórnin telur að Náttúruverndarráð brygðist hlutverki sínu ef það mælti með öðru en bráðabirgðaleyfi þar sem rannsóknir skortir til þess að hægt sé að fjalla um leyfi til lengri tíma án þess að verndun svæðisins sé sett í hættu. Ekki er við öðru að búast þar sem ríkisvaldið hefur brugðist þeirri lagaskyldu undangengin ár að veita fé til þessara rannsókna. Við fáum ekki séð að hag Kísiliðjunnar sé betur komið með leyfi til lengri tíma, sem síðan yrði afturkallað ef rannsóknir leiða til þeirrar niðurstöðu að þrem árum liðnum, heldur en fá að rannsóknum loknum leyfi sem byggði á niðurstöðum þeirra.

Að lokum vill stjórn Landeigendafélags Laxár og Mývatns leggja þunga áherslu á eftirfarandi: Lífríki Laxár og Mývatns er einstætt og þess vegna er það undir sérstakri vernd Náttúruverndarráðs skv. lögum, auk þess alþjóðlegt verndarsvæði að ákvörðun Alþingis og ríkisstj. (Ramsar-sáttmáli). Sérkenni þessa lífríkis felast ekki síst í því hve vatnið er grunnt og sólarljós nær að hafa mikil áhrif á lífríki botnsins.

Verði Syðri-Flói dýpkaður þurrkast þessi sérkenni út. Breytingar á Mývatni og lífríki þess hafa áhrif á Laxá allt til sjávar. Sá þverbrestur, sem orðið hefur á lífríki Mývatns á s.l. tveimur árum, kallar á tafarlausar rannsóknir til að vita hvað veldur.

Að síðustu beinir stjórnin því til þín, hæstv. iðnrh., að þú takir á málum þessum með fullum skilningi og verndargildi þessa viðkvæma svæðis.

Virðingarfyllst, Stjórn landeigendafélags Laxár og Mývatns, Vigfús B. Jónsson, Jón Jónasson, Völundur Þ. Hermóðsson, Eysteinn Sigurðsson, Þorgrímur Starri Björgvinsson.“

Ég vil að lokum, herra forseti, ítreka tillögur Náttúruverndarráðs í þessu máli sem birtar eru í bréfi til iðnrn. 18. des. s.l. Þar stendur:

„Í bréfi iðnrn. frá 1. okt. s.l. er óskað umsagnar Náttúruverndarráðs varðandi endurnýjun á námaleyfi Kísiliðjunnar hf. við Mývatn. Náttúruverndarráð hefur nú fjallað um ósk rn. og ákveðið að mæla með framlengingu námaleyfis Kísiliðjunnar til fimm ára, eða til ársins 1991, ef ákveðnum skilyrðum verði fullnægt. Ráðið getur ekki mælt með lengri framlengingu:

a) Vegna þess að sýnt þykir að kísilgúrvinnslan hafi veruleg áhrif á lífríki vatnsins.

b) Vegna mikilvægis Mývatns í náttúru landsins og Evrópu.

c) Vegna þess hve rannsóknir á Mývatni eru skammt á veg komnar.

d) Vegna þeirrar alþjóðlegu ábyrgðar á vernd Mývatns sem Íslendingar tóku á sig við undirritun Ramsar-sáttmálans.

Framlenging námaleyfis um fimm ár er háð eftirfarandi skilyrðum:

1. Efnistaka takmarkist við Ytri-Flóa og fari fram innan svæðis sem hafi eftirfarandi viðmiðanir á landi: Vesturmörk: Lína úr Dauðanesi um Ölfushólma í Kvæk. Austurmörk: Lína úr Dauðanesi í dælustöð við Helgavog. Enn fremur verði náið samráð haft við Náttúruverndarráð um röð vinnslusvæða.

2. Fram fari rannsóknir á áhrifum gúrnáms í Ytri-Flóa á lífríki Mývatns og hefjist þær eigi síðar en vorið 1985 sbr. meðfylgjandi rannsóknaáætlun líffræðistofnunar Háskólans. Þegar niðurstöður rannsókna liggja fyrir haustið 1988 mun Náttúruverndarráð endurskoða framlengingu námaleyfis Kísiliðjunnar.“

Undir þetta rita Eyþór Einarsson formaður og Sigrún Helgadóttir líffræðingur.

Þetta virðist aðgengilegt og sanngjarnt og mér er óskiljanlegt hvers vegna ekki er hægt að fara að þessum tillögum þess aðila sem hefur lagalegan rétt til ákvörðunar í þessu máli.