22.10.1984
Neðri deild: 5. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (202)
48. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þetta mál, sem nú er á dagskrá, var til rækilegrar meðferðar á síðasta þingi. Þá fóru fram ítarlegar umr. um þetta mál.
Ég verð að segja eins og er að mér kom nokkuð á óvart sú yfirlýsing hæstv. menntmrh. að konur í Sjálfstfl. væru upp til hópa á móti jákvæðri mismunun þegar það liggur fyrir, ég veit ekki betur, að flokksmenn úr Sjálfstfl. standa að þeirri tillögu sem hefur verið birt hv. Alþingi á þskj. 109 í sérstöku þingmáli. Þar er um að ræða þingmál sem hefur áður komið hér til meðferðar og byggir á tillögum nefndar sem starfaði á árunum 1981–1983. Það er samkomulagsmál. Það er fólk úr flestum stjórnmálaflokkum sem að því stendur. Þar er ekki um að ræða ýtrustu óskir eins eða neins, eins og hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir gat um áðan. Sjálfsagt vildu ýmsir í þeirri nefnd hafa hlutina aðeins öðruvísi en þar er lagt til. — Það kemur mér mjög á óvart, með tilliti til þess að þeir nefndarmenn sem munu vera í Sjálfstfl. taka þessa afstöðu, ef það er svo að konur í Sjálfstfl. hafi ákveðið að beita sér sérstaklega á móti jákvæðri mismunun.
Það sem kallað er jákvæð mismunun á sér auðvitað langa sögu og á sér mjög margar hliðstæður í löggjöf, t.d. löggjöf um önnur málefni en þau sem hér eru sérstaklega á dagskrá. Það eru ákvæði um það í grundvallarlögum okkar þjóðfélags, t.d. kosningalögunum, að það skuli vera um að ræða mismunandi atkvæðavægi, mismunandi kosningarrétt eftir því hvar fólk býr í landinu. Þannig hefur hv. Alþingi aftur og aftur tekið ákvarðanir um að áherslur í þessu efni geti verið nokkuð mismunandi eftir aðstæðum og þess vegna hefur hv. Alþingi auðvitað aftur og aftur fallist á sjónarmið af þessum toga. Hér er því ekki um að ræða nýlundu í almennu löggjafarstarfi, heldur fyrst og fremst nýlundu að því er þennan málaflokk varðar. Núverandi ríkisstj. hefur kosið að hafna þessu sjónarmiði nefndarinnar um jafnréttismál og hefur spillt stórkostlega því merka starfi sem nefndin vann á árunum 1981–1983 við að ná samstöðu um jafnréttismál.
Ég ætla ekki á þessu stigi að fara út í almennar umræður um jafnréttismál þó að það væri freistandi í framhaldi af orðum hv. þm. sem töluðu á undan mér, t.d. 7. landsk. þm., sem flutti athyglisverða ræðu, svo og hæstv. menntmrh. En ég ætla bara að nefna fáein grundvallaratriði og það númer eitt að í þeirri viðleitni sem hefur verið uppi til að setja lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla hefur enginn verið með tillögur um að konur verði karlar eða öfugt. Það er ósköp einfaldlega verið að gera tillögur um að konur fái sem næst svipaða möguleika og karlmenn hafa í þjóðfélaginu og karlmenn geti einnig náð sömu möguleikum.
Ég er þeirrar skoðunar að jafnrétti kynjanna geti aldrei orðið til nema sérstaða kynjanna sé líka virt. Það er grundvallar- og undirstöðuatriði. Og ég held að það eigi ekki að gera lítið úr þeim jákvæða vilja sem birtist mjög víða á seinni árum í jafnréttismálum, heldur beri að fagna honum og nýta hann til þess að þróa áfram löggjöf og ákvarðanir hér á hv. Alþingi og annars staðar sem þjóna almennum jafnréttissjónarmiðum. Það er t.d., svo að ég nefni dæmi, brýn nauðsyn að konur verði miklu fleiri í pólitísku starfi en þær eru núna. Af hverju er það brýn nauðsyn? Það er vegna þess að það verður ekkert vit í pólitískum ákvörðunum öðruvísi en að jafnvægi sé á milli kynjanna við þá ákvarðanatöku. Það er ósköp einfalt grundvallaratriði að því aðeins nást skynsamlegar heildarákvarðanir að konur séu jafngildir aðilar að þeim og karlar. Þess vegna er það sjónarmið mitt að eitt af þýðingarmestu verkefnunum í stjórnmálaumræðum og stjórnmálaákvörðunum á næstu árum sé að tryggt verði að konur geti starfað þar mun meira en verið hefur. Ég tel að það hafi ekkert með einstaka flokka að gera til eða frá. Ég held að það sé lífsnauðsyn fyrir þjóðfélagið sem slíkt.
Ég er alveg sammála hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur um að hugarfarsbreyting í þessu efni er nauðsyn og talsverð hugarfarsbreyting hefur verið að gerast á síðustu árum. En það dugir ekki eingöngu að leggja áherslu á hugarfarsbreytingu. Það verða að eiga sér stað efnislegar breytingar í þjóðfélaginu sem geta svo skapað forsendur fyrir því að hugarfarsbreytingin haldi áfram. Ég tel t.d. að það sé mikilvægt að lög og reglur séu þannig að þau stuðli að þessari hugarfarsbreytingu. Ég tel t.d. að löggjöf um fæðingarorlof, sem var sett hér fyrir nokkrum árum, frv. um fjarvistarrétt foreldra vegna veikinda barna, heimilisfræðsla o.fl. o.fl. — allt geti þetta fært okkur nær því markmiði sem við í sameiningu erum sammála um að keppa að. Ég held þess vegna að við eigum engan veginn að gera lítið úr þeim möguleikum sem löggjafinn hefur í þessu efni. En hann hefur hins vegar takmörkuð og sem betur fer ekki nein altæk völd í þessu efni. Og þarna kemur margt til, m.a. staðan á vinnumarkaðinum.
Ég er þeirrar pólitísku skoðunar að almennt sé mjög erfitt að ná verulegum áföngum í jafnréttismálum nema við þorum að taka á móti markaðs- og peningaöflunum í þjóðfélaginu. Ég er þeirrar skoðunar að þau öfl standi gegn samneyslu. Það liggur fyrir. Þau eru á móti samneyslu og eru þar af leiðandi andvíg félagslegum ráðstöfunum sem geti stuðlað að auknum jöfnuði kynjanna, m.a. framkvæmdum í dagvistarmálum svo að ég nefni dæmi.
Í annan stað tel ég alveg ljóst að hinn svokallaði frjálsi vinnumarkaður hyllist til þess að greiða körlum í toppstöðum mun hærri laun og þar með er reglan sú að bæði á hinum almenna vinnumarkaði í hinni almennu samkeppni og að því er varðar samneysluna eru peningaöflin mótdræg öllu því sem heitir jafnréttissjónarmið að mínu mati. Ég held að útilokað sé að ná neinum árangri í baráttu fyrir breyttu þjóðfélagi í jafnréttisátt öðruvísi en að karlar og konur þori að horfast í augu við þann veruleika og ganga á hólm við hann.
Ég tel sem sagt að jafnréttismál séu pólitísk og þau grundvallist á sömu pólitísku forsendunum og flest í okkar samfélagi, þ.e. þeim forsendum sem tekist er á um í þjóðfélaginu m.a. um þessar mundir í þeim miklu vinnudeilum sem ganga yfir í þjóðfélaginu þar sem verið er að takast á um skiptingu verðmætanna á milli höfuðstéttanna.
Ég ætla ekki á þessu stigi, herra forseti, að fara mikið ítarlegar út í þessi mál. Ég ætla hins vegar að inna hæstv. félmrh. eftir því hvort hann er ekki tilbúinn að fresta 1. umr. um þetta mál í nokkra daga. Þannig eru mál vaxin að Jafnréttisráð hefur fjallað um frv. hæstv. ráðh., sem hér er á dagskrá og einnig það frv. sem nokkrir þm. sýndu á síðasta þingi. Jafnréttisráð fékk þessi frv. til umsagnar á síðasta þingi og mér er kunnugt um að þeirri umsögn er nú svo að segja lokið. Ég hefði talið mjög heppilegt ef umsögn Jafnréttisráðs um bæði þessi frv. lægi fyrir áður en 1. umr. um þetta frv. lýkur. Ég vil fara þess á leit við hæstv. félmrh. að hann fallist á að 1. umr. um þetta frv. verði frestað til þess að unnt verði að ræða um það á grundvelli ítarlegrar umsagnar sem væntanleg er frá Jafnréttisráði og þá í tengslum við það frv. sem nokkrir þm. hafa orðið ásáttir um að sýna hér, þ.e. 105. mál þingsins, þskj. 109.
Ég held að frv. hæstv. félmrh. sé að mjög takmörkuðu leyti til bóta, því miður, og ég harma að hæstv. ráðh. skuli ekki hafa notað sumarið til að laga það ómyndarfrv. sem hann lagði fram á síðasta þingi. Ég þykist vita að ýmsir af samflokksmönnum hæstv. ráðh. telji þetta frv. að mörgu leyti gallað og hefðu gjarnan viljað laga það, en viðleitni þeirra í þeim efnum virðist ekki hafa borið árangur ef þeir á annað borð hafa haft uppi einhverja viðleitni til að lagfæra frv. Ég fer fram á það, herra forseti, og einnig við hæstv. ráðh., að 1. umr. um þetta frv. ríkisstj. verði frestað um nokkra daga. Mér er kunnugt um að umsögn Jafnréttisráðs er væntanleg alveg á næstunni. Auðvitað kann svo að vera að hæstv. forseti vilji ljúka þessari umr. þannig að þeir sem eru á mælendaskrá tali í dag og það er sjálfsagt eðlileg verklagsregla, en ég hefði viljað fara fram á að umr. ljúki ekki og málinu verði ekki vísað til nefndar fyrr en eftir nokkra daga þegar hin mikilvæga umsögn Jafnréttisráðs liggur fyrir.