31.01.1985
Sameinað þing: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2546 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég hef ekki verið lengi á þingi, en ég hef sjaldan heyrt málflutning eins og hjá hv. þm. Birni Dagbjartssyni. Það er kannske eins gott vegna þess að við berum virðingu þessarar stofnunar á vissan hátt fyrir brjósti. Ég hef aldrei heyrt ræðu sem er eins full af öfund og tortryggni, skætingi og mannfyrirlitningu á þessum mánuðum sem ég hef verið hér.

Varðandi það hvernig að þessu máli er staðið ætla ég að upplýsa hæstv. ráðh. og hv. þm. um að það er að mínu eigin frumkvæði að ég hef aflað mér gagna um þetta mál. Það eru líklega þrjár vikur síðan ég hafði samband við skrifstofu Náttúruverndarráðs og óskaði þess að fá þau gögn sem fyrirliggjandi væru í þessu máli. Það er líklega vika síðan ég hafði aftur samband við skrifstofuna og óskaði þess að fá þau gögn sem kynnu að hafa bæst við og að ég fengi að vita um atburði og það sem kynni að gerast í þessu máli á næstu dögum vegna þess að ég álít það mikilvægt. Ég get ekki gert að því þótt hv. þm. Björn Dagbjartsson gangi í gegnum lífið með lokuð augun. Það vill svo til að hægt var að lesa, m.a.s. í hans málgagni, um þessi mál fyrir áramót. Og lögin, sem hér um ræðir, voru gefin út 1974 og líklega hefur hann verið orðinn læs þá. Hv. þm. hefur engu um að kenna nema sínum eigin aumingjaskap ef hann hefur ekki aflað sér þeirra gagna í þessu máli að hann sé viðmælandi um það í dag. Og hann ætti að spara sér fleiri ferðir í þennan stól þangað til hann hefur lesið þessi plögg.

Ég nenni varla að eyða orðum að því frekar sem í máli hans kom fram vegna þess að það var ekkert sem skipti máli. Hann talaði um að ég væri að þjóna einhverjum undarlegum kenndum og vekja athygli á mér. Ég held að það sé óþarfi fyrir þm. að vekja svo rækilega athygli á vankunnáttu sinni og fúllyndi sem hann gerði í stólnum áðan.

Ég vil að hérna komi skýrt fram að gagnaöflunin í þessu máli er að mínu eigin frumkvæði. Ég hef ekki verið undir neins konar fjarstýringu, eins og dylgjur þm. og ráðh. fólu í sér, og mér finnst það alls ekki starfi þeirra samboðið að hafa svona málflutning í frammi.

Það var í máli þeirra beggja vikið á ýmsan hátt að málfrelsi náttúruverndarráðsmanna. Það kemur manni ekkert á óvart, eftir það hvernig þeir hafa talað um þetta mál og hegðað sér, eins og hæstv. ráðh., að auðvitað vildu þeir múlbinda þá alla. Það er hin venjulega afstaða kerfiskarlanna að þola ekki að nokkur maður tali eða hugsi frá eigin brjósti og láti það uppi við nokkurn mann. Það er verðugt verkefni að líta á íslenskt stjórnkerfi með tilliti til frelsis og upplýsingaskyldu. Hér standa menn upp og berja sér á brjóst út af einhverju bréfi sem sé ekki komið norður. Það er líklega ástæðan fyrir því að þeir töluðu þó við Moggann í gærkvöld. Þeir reikna líklega með að Mogginn og bréfið fari í sama pósti norður. Auðvitað er þetta opinbert mál. Þetta kemur í öllum blöðum í morgun, inntak málsins kemur þar fram. Það væri vanræksla af hálfu Alþingis að taka þetta ekki fyrir eins og að því hefur verið staðið.

Umfjöllun ráðh. um lagastöðuna í máli þessu sýnir einmitt og sannar að lögin frá 1974 um verndun Laxár og Mývatns hafa nákvæmlega ekkert gildi. Það kemur á ýmsan hátt fram. Það kemur t.d. fram á þann hátt að í bréfinu er talað um að það sé sama ríkisins vegna þótt kísilgúr sé tekinn innan netalaga. Það er gefið leyfi fyrir kísilgúrtökunni yfirleitt án þess að hlutur Náttúruverndarráðs sé nokkurn tíma nefndur. Það þarf ekki annarra vitna við um að þessi lög eru ónýt. Þetta er svartur dagur í sögu íslenskra náttúruverndarmála. Fróðlegt væri fyrir hæstv. menntmrh. að vera hér viðstaddur og fylgjast með því hvernig um þessi mál hefur verið rætt og þeim dylgjum og dónaskap sem mönnum hefur verið sýndur.

Það er undarleg lögskýring, og reyndar tilkynnti hæstv. ráðh. að hann væri ekki sömu skoðunar, að lögin um Mývatn og Laxá giltu einungis um framkvæmdir og jarðrask sem eftir lagasetninguna kæmu til greina. (Gripið fram í.) Já, einmitt. Sú skoðun, hvers sem hún er, er náttúrlega fjarstæða. Það kemur fram í því hvernig að þessu máli er staðið að þar er verið að tryggja lögsögurétt Náttúruverndarráðs og að það hafi ótvíræðan rétt yfir þá lagasetningu sem þegar hafi verið sett um þessi mál. Hvað varðar vatnsbotninn sjálfan má segja að það sé tómt mál að tala um lagasetningu til að verja Mývatn ef vatnsbotninn er ekki varinn, vegna þess að hann er undirstaðan að þessu öllu saman. Og það var svo sem eftir málflutningi hv. þm. Björns Dagbjartssonar að fara að velta fyrir sér hver ætti vatnsbotninn og reyna að skjóta ráðh. sínum undan skömminni með vangaveltum um það. Vatnsbotninn er upphaf og endir þess lífs sem þarna er.

Það hefur verið talsvert rætt hérna um rannsóknir. Það er nú einu sinni gæðingum Háskóla Íslands, sem hv. þm. kallar svo, að þakka að það er líklega og vonandi hægt á fáum árum núna með öflugu átaki að gera þær rannsóknir sem til þarf til þess að komast sæmilega til botns í þessu máli. Ef það er hægt á þeim tíma sem er til stefnu er það vegna rannsókna þessara svokölluðu gæðinga Háskóla Íslands. Það er vegna þessara rannsókna, sem þegar hafa verið gerðar, að menn telja að með mjög öflugu átaki, reyndar öflugra átaki en hæstv. iðnrh. fjármagnar í sínum tillögum, sé hægt, jafnvel á þremur til fjórum árum eins og Líffræðistofnun Háskólans hefur talað um, að gera þær rannsóknir sem gerðu mönnum kleift að vita nokkurn veginn hvar þeir standa. Það verður m.a. hægt vegna rannsókna sem voru undir stjórn Péturs Jónassonar frá Kaupmannahafnarháskóla. Hann er kannske einn af þessum gæðingum og hann og hans menn meðal þessara gæðinga sem verið er að tala um.

Það eru auðsjáanlega nauðsynlegar verulegar viðbótarrannsóknir á þessu svæði til þess að fá botn í þessi mál og menn skyldu ekki tala með útúrsnúningum og illgirni um þá rannsóknarviðleitni sem þarna hefur þegar verið og gerir mönnum þó kleift að fjalla af einhverju viti um þetta mál, þótt vitið hafi greinilega ekki verið tiltækt þessum tvímenningum þegar þeir héldu í umr. í dag.

Í bréfi íbúa á svæðinu, sem hæstv. ráðh. hefur í tvígang gert að umræðuefni, er tekið fram að þeir eru að álykta gegn möguleikum á kísilgúrnámi í Syðri-Flóa. Mér er það fullvel ljóst. Mér er líka ljóst að 15 ára leyfið teygir menn hugsanlega innan færri ára en 15 inn á Syðri-Flóa nema verksmiðjan ætli sér kannske að taka kísilgúr á algjörlega óbætanlegum varpstöðvum á vesturhluta Ytri-Flóa, vestan við þá línu sem hún leggur til í bréfinu dags. 18. des. Það er nefnilega þannig að leyfið eins og það er gefið núna opnar möguleikann á kísilgúrtöku í Syðri-Flóa og það er gegn þeim möguleika sem sextíumenningarnir eru að álykta. Það eru engin skilyrði um staðsetningu prammans í þessu bréfi. Það er fullkominn möguleiki á því að þarna verði tekinn kísilgúr innan 15 ára ef svo fer sem horfir og ráðleysið og dugleysið ræður.

Hæstv. ráðh. lýsti því yfir að hann teldi lögin frá 1974 ekki ómerk, en þó gengur hann gegn þeim að öllu leyti. Þau eru gjörsamlega gagnslaust plagg eins og með þau hefur verið farið í þessari einu afgreiðslu, þessu eina bréfi. Annaðhvort þarf að endurskoða þessa löggjöf eða hnekkja þessari leyfisveitingu vegna þess að eins og málið stendur núna er það gjörsamlega óviðunandi. Ráðh. og þm. ættu að hlusta meir og betur á hv. þm. Vigfús Jónsson þegar hann ræðir um stundarhagsmuni og langtímahagsmuni. Þá gæti verið að það opnaðist einhvers staðar glufa fyrir þann skilning sem er nauðsynlegur og óumflýjanlegur í þessu máli.

Það er hægt að halda áfram lengi dags, en ég ætla að hafa orð hæstv. forseta í huga þegar ég segi máli mínu senn lokið. Hvers vegna er munur á því að gera eins og hæstv. ráðh. hefur gert, að veita leyfi í 15 ár og setja af stað rannsóknir og hafa uppsagnarákvæði, og hins vegar þeim möguleika sem Náttúruverndarráð stakk upp á, sem er fimm ára leyfi og rannsóknir? Munurinn er sá að með 15 ára leyfinu er verksmiðjunni gefinn aðalbrautarréttur í 15 ár og til þess að stöðva kísilgúrtökuna er sönnunarskyldan Náttúruverndarráðs megin. Hún er reyndar ekki einu sinni Náttúruverndarráðs megin af því að það hefur skv. þessu enga umsögn um málið lengur. Stöðvunarskyldan er iðnrh. Til þess að stöðva þetta þarf rannsóknir sem eru enn þá einu sinni á valdi þess sama fjárveitingavalds sem hefur svo gjörsamlega brugðist hlutverki sínu hingað til, þó tilskildar séu þessar milljónir núna. Hvaða trygging er fyrir áframhaldandi rannsóknum? Þetta er engin trygging. Við höfum nú séð annað eins við setningu fjárlaga hérna og að kippt sé úr sambandi einni og einni fjárveitingu. Það heitir: þrátt fyrir ákvæði laga eða þrátt fyrir þetta og hitt.

Við erum í nákvæmlega sömu stöðu og áður. Kísiliðjan fær aðalbrautarréttinn, síðan er það annarra að reyna að stöðva kísilgúrtökuna ef þeim tekst að koma viti fyrir þann ráðh. sem veitti leyfið, ef þeir fá til þess fjármagn frá fjárveitingavaldi sem hefur verið svo óvinveitt og skilningssnautt hingað til. Þetta er hinn beiski sannleikur. Og þetta er enn þá verra vegna þess að þeir menn sem undir þarf að sækja hugsa allir eins og hv. þm. Björn Dagbjartsson. Ég veit ekki hvort ég hef það orðrétt eftir honum, en hann sagði: Ég er sannfærður um að kísilgúrtakan er af hinu góða. — Það mun þurfa að sannfæra hann um hið gagnstæða. Þetta er mergurinn málsins. Þeir sem að þessari leyfisveitingu standa og þeir sem verja hana eru sannfærðir um að kísilgúrtakan sé af hinu góða. (Iðnrh.: Þetta er fullyrðing út í bláinn sem þú veist ekkert um. Þetta er alrangt. Þú hefur ekki hugmynd um það.) Ég hef þetta eftir hv. þm. Birni Dagbjartssyni og ég þekki þennan hugsunarhátt annars staðar að. (Gripið fram í.) Það er nefnilega engin trygging að þessar 2 millj., sem talað er um að hugsanlega fari í þessar rannsóknir á hverju ári, nægi til að afla nægilegra gagna um þetta mál. Þó við treystum því að þær fáist erum við ekkert viss um að við getum forðað voða þarna. (Iðnrh: Pétur Jónasson álítur þetta mjög mikla og góða fjárfestingu.) Ég vona að Pétur Jónasson hafi á réttu að standa og þetta verði nægilegt vegna þess að þarna er mikið í húfi, miklu meira í húfi en þeir sem að þessu standa virðast skilja.

Eins og ég sagði fyrr í kvöld er þetta svartur dagur í sögu íslenskrar náttúruverndar þegar ráðh. og önugur skósveinn hans ganga svona fram og traðka á kannske einu löggjöfinni sem virkilega hefur verið reynt að setja á Íslandi til þess að tryggja umráðarétt náttúruverndaryfirvalda.