31.01.1985
Sameinað þing: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2558 í B-deild Alþingistíðinda. (2027)
Umræður utan dagskrár
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Hv. þm. Björn Dagbjartsson taldi í fyrri ræðu sinni hér fráleitt að fullyrða nokkuð um að meiri hluti landeigenda væri sammála Náttúruverndarráði og tillögum þess. Af því tilefni vil ég benda á að þeir 60 aðilar, sem náðist í á einu kvöldi til að undirrita yfirlýsingu þá sem vitnað var til hér áðan, eru frá a.m.k. 19 bæjum í Mývatnssveit, og raunar fleirum, því margbýlt er víða í þeirri góðu sveit eins og menn vita. Hv. þm. Björn Dagbjartsson er að vísu mér kunnugri í Mývatnssveit og hef ég þó harla oft þangað komið, enda alin upp í næsta nágrenni, en skv. litlu korti sem ég er hér með eru þetta fulltrúar frá því sem næst öllum bæjum sem þar eru merktir. Auk þess vitnaði ég til bréfs stjórnar Landeigendafélags Laxár og Mývatns sem er einróma í afstöðu sinni. Vildi ég láta þetta koma fram hér.
En ósköp er leiðinlegur og ómálefnalegur þessi sífelldi belgingur sjálfstæðismanna gagnvart Kvennalistanum sem þeir telja að ekkert vit hafi á atvinnumálum. Ég verð að benda enn og aftur á að það koma ekki margir ferðamenn til að kynna sér einstakt fuglalíf á þessum dýrmæta stað, drottningu íslenskra vatna, ef skammsýnin og sjónarmið stundargróða fá hér öllu að ráða. Ferðamennska er ekki síður mikilvægur atvinnuvegur en kísilgúrvinnsla.
Ég vil þakka hv. þm. Vigfúsi Jónssyni fyrir innlegg hans í þessa umr. Þau orð voru sem töluð út úr mínu hjarta. Ég ráðlegg hæstv. iðnrh. og skoðanabræðrum hans að lesa þá ræðu vandlega. Við verðum að huga að því í tæka tíð hvað á að taka við þegar Kísiliðjan hættir starfsemi. Sæmra væri að snúa sér strax að því og jarða alla drauma um kísilgúrvinnslu til allt að 54 ára, eins og heyrðist hér áðan, sem óbætanlegu tjóni mundi valda m.a. fyrir aðra atvinnu á þessu svæði.