31.01.1985
Sameinað þing: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2562 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)

Umræður utan dagskrár

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að segja nema örfáar setningar. Það er reyndar hægt að halda áfram að ræða ýmislegt varðandi þetta mál. Svo mikilvægt er það og svo margt hefur komið í ljós í sambandi við það. En mér sýnist eiginlega að mergur málsins sé sá, eins og ég sagði fyrr í ræðu minni í dag, að eftir þetta hljótum við að endurskoða í fyrsta lagi stöðu Náttúruverndarráðs, í öðru lagi stöðu og styrk laga og reglugerða um náttúruvernd og svo í þriðja lagi held ég að rétt sé að halda áfram að ræða og reyna í raun og veru réttmæti eða lögfræðilega staðfestu þessa leyfis, sem hefur verið veitt, á hvern hátt sem það er síðan gert, vegna þess að eins og ég las í ræðu minni í dag var augsýnilega meiningin með lögunum frá 1974 að setja lög sem undantekningarlaust tryggðu yfirráð Náttúruverndarráðs á þessu svæði. Það stendur eftir, eins og kemur fram í grg. sem ég las upp úr og síðan reyndar hv. þm. Svavar Gestsson, að það er augsýnilega vilji 1öggjafans. Ég held því að þm. geti ekki látið þetta fara frá sér án þess að gera annað tveggja: hnekkja þessum úrskurði eða breyta þessum lögum. Málið er svo einfalt.