04.02.1985
Sameinað þing: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2565 í B-deild Alþingistíðinda. (2032)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréf Gunnþórunnar Gunnlaugsdóttur, sem er 2. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi. Þess er óskað að hún taki sæti sem varamaður Sverris Hermannssonar, 3. þm. Austurl. Fyrir liggur að Tryggvi Gunnarsson. 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, getur ekki tekið sæti sitt á Alþingi.

Nefndin hefur yfirfarið kjörbréfið, hefur ekkert athugavert fram að færa og leggur til að það verði samþykki.