04.02.1985
Efri deild: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2577 í B-deild Alþingistíðinda. (2043)
247. mál, flutningsjöfnunarsjóður olíu og bensíns
Árni Johnsen:
Hæstv. forseti. Þegar talað er um olíufélögin sem einokunarfyrirtæki er það ekki nema hálfur sannleikurinn vegna þess að olíufélögin eru kannske fyrst og síðast gulltryggðir kálfar ríkisvaldsins á þann hátt að olíufélögin hafa allt sitt á þurru. Það hefur ríkissjóður einnig í þessu dæmi. En olíufélögin hafa sinn hlut svo ríflegan að þau una ávallt glöð við sitt og það er kannske mergurinn málsins.
Gallinn er tvíþættur. Gallinn er í fyrsta lagi varðandi fyrirkomulagið á sérleyfi á innflutningi olíu til landsins og í öðru lagi á því samfloti sem olíufélögin hafa, samtryggingu og samspyrðingu í nær einu og öllu. Mergurinn málsins á auðvitað að vera sá að etja þessum aðilum saman, kreista úr þeim safann, kreista úr þeim þrek, til þess að skila árangri og lægra olíuverði í þessu landi.
Það er grundvallaratriði að þarna sé tekið til höndum. Þetta frv., sem rætt er um, leysir ekki þennan vanda. Það fjallar um einn þátt í þessu stóra dæmi. Ástæða er til að fjalla um það um leið, sem við vitum, að því er ekki þann veg farið í dag að olíuverðið sé eðlilegt á landinu. Við vitum að innkaupin og verðlagningin eru ákveðinn úreltur leikur með tölur og form. Gleggsta dæmið í þessu efni er einfaldlega dæmið um verðið á olíu til fiskiskipa. Það stenst ekki að í nágrannalandi okkar skuli verð á olíu til fiskiskipa vera 35% lægra en í okkar landi. Það er e.t.v. eitt gleggsta dæmið um að þarna er maðkur í mysunni.
Það sem skiptir mestu máli og við eigum að stíla upp á og stefna að, eins og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson gat um, er að auka frelsi í innflatningi olíu, stuðla að því númer eitt, tvö og þrjú að knýja þá aðila, sem sinna þessum viðskiptum, til samkeppni í stað samtryggingar.