04.02.1985
Efri deild: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2580 í B-deild Alþingistíðinda. (2048)

247. mál, flutningsjöfnunarsjóður olíu og bensíns

Kolbrún Jónsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að lýsa ánægju minni með þessa umr. hér í dag. Það er ekki á hverjum degi sem boðuð er bylting hér í þessari hv. deild og það er vissulega ánægjuefni að allir hv. þm. hér skuli vera svona sammála. Ég bíð spennt eftir því að sjá þetta kerfi uppbrotið og þennan gullkálf brotna niður í smærri parta svo að aðrir geti notið einhvers arðs af þessari starfsemi. Sú arðsemi ætti að renna til þjóðarinnar og útgerðarinnar og neytenda almennt í þessu landi, þessi arður sem auðsjáanlega myndast hjá olíufélögunum. Það dylst engum, hvorki í Reykjavík né úti um land, hvar sem litið er á uppbyggingu dreifingarstöðva sem hefur átt sér stað um allt land.

Það eru ekki allar hjúkrunarstofnanir hér á landi sem hafa efni á því að setja heitt vatn allt í kringum sig eins og hv. þm. Austurl. nefndi hér áðan með uppbyggingu olíu- og bensínsölustöðvar á Austurlandi. Ég hef hvergi séð aðra eins. Þar er hver einasti fermetri í svæðinu umhverfis stöðina hitaður upp með heitu vatni.

Ég endurtek það að ég er mjög ánægð yfir því að þetta skuli vera komið hér til umr. og þrátt fyrir að ég eigi ekki sæti í hv. fjh.- og viðskn. mun ég fylgjast vel með framgangi þessa máls. Bandalag jafnaðarmanna stendur einhuga að baki því að brjóta upp þetta samtryggingar- og einokunarkerfi í olíusölu.