04.02.1985
Efri deild: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2581 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)

237. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 50 frá 1. júní 1984, um Lífeyrissjóð bænda. Á síðasta þingi voru samþykki ný heildarlög fyrir Lífeyrissjóð bænda og birtust þau sem lög nr. 50/1984. Í athugasemdum, er fylgdu frv. þessu til laga, kom fram að eðlilegt þætti að bíða með tillögur um fjármögnun útgjalda skv. II. kafla laganna þar til ljóst yrði hvað yrði um hliðstæð réttindi skv. lögum um eftirlaun til aldraðra. Hér er um að ræða fjármögnun á lífeyrisgreiðslum til þess hóps aldraðra bænda sem veitt eru lífeyrisréttindi umfram það sem þeir hafa áunnið sér með iðgjaldagreiðslum.

Á haustþingi lagði heilbr.- og trmrh. síðan fram frv. til breytinga á lögum, um eftirlaun til aldraðra, þar sem gert var ráð fyrir fimm ára framlengingu á þeim lögum þannig að þau giltu til ársloka 1989. Var það frv. samþykkt hér á Alþingi og birt sem lög nr. 117/1984. Er frv. það, sem hér er til umr., flutt í tengslum við þessa breytingu á lögum um eftirlaun til aldraðra.

Þegar lög um Lífeyrissjóð bænda voru sett árið 1970 var kveðið svo á að útgjöld vegna réttinda skv. II. kafla laganna skyldu til ársloka 1985 borin að hluta af Stofnlánadeild landbúnaðarins og að hluta af ríkissjóði. Þegar sérstök verðtrygging eftirlaunagreiðslna skv. lögum um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum kom til sögunnar árið 1976 tók Lífeyrissjóður bænda á sig útgjöld vegna hliðstæðrar verðtryggingar lífeyrisgreiðslna skv. II. kafla laga sjóðsins. Vegna aldursskiptingar bænda eru þessi útgjöld sjóðnum afar þungur baggi. Með áðurnefndum lögum nr. 97/1979, um eftirlaun til aldraðra, var þeirri skipan komið á að Lífeyrissjóður bænda skyldi eins og aðrir lífeyrissjóðir leggja fram skv. þeim lögum 5% af iðgjaldatekjum sínum, en á hinn bóginn skyldu útgjöld til hinnar sérstöku uppbótar á lífeyri skv. II. kafla laga sjóðsins greidd með framlagi skv. 25. gr. laga nr. 97/1979.

Í frv. þessu er lagt til að tímabundin ákvæði laganna um Lífeyrissjóð bænda. um fjármögnun útgjalda skv. II. kafla laganna og verðbætur á lífeyri verði framlengdur til ársloka 1989, en skv. núgildandi lögum rennur gildistími þessara ákvæða út ýmist í árslok 1984 eða 1985. Að hluta eru breytingar þessar bein og sjálfsögð afleiðing af framlengingu ákvæðanna um framlög skv. 25. gr. laga um eftirlaun til aldraðra. Þá er í frv. lagt til að ákvæðunum um viðmiðunarlaun þau, sem eru grundvöllur lífeyrisréttinda, verði breytt með hliðsjón af breyttum aðstæðum.

Virðulegi forseti. Ég tel mig ekki þurfa að fjölyrða frekar um efni þessa frv. enda er það í raun fylgifiskur þess samþykkta frv. um framlengingu ákvæða um eftirlaun til aldraðra. Ég legg því til að frv. verði vísað til hv. landbn. og 2. umr. að lokinni þessari umr.